Innlent

ÖSE boðið að hafa eftirlit með kosningum hér

Fastanefnd Íslands hjá Öryggis- og samvinnustofun Evrópu, ÖSE, í Vín, bauð stofnuninni í dag að hafa eftirlit með kosningunum sem áætlaðar eru hér á landi í vor.

Í fréttatilkynningu frá utanríkisráðuneytinu segir að öll þátttökuríki ÖSE séu skuldbundin til að bjóða stofnuninni að hafa eftirlit með þing- og forsetakosningum. Ekki liggi fyrir hvort ÖSE mun þekkjast boðið, en íslensk stjórnvöld muni staðfesta kjördag, sem nú er áætlaður 25. apríl, um leið og formlega hafi verið boðað til kosninga.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×