Hár Presley ekki ókeypis Atli Steinn Guðmundsson skrifar 19. október 2009 09:01 Elvis og hárið.
Hárlokkar af Elvis Presley seldust fyrir 18.300 dollara á uppboði í Chicago í gær. Fréttastofan greindi frá því í síðustu viku að til stæði að bjóða upp nokkrar hárlufsur sem klipptar voru af höfði rokkkonungsins Elvis Presley þegar hann hóf herþjónustu árið 1958. Uppboðið átti sér stað í gær og er skemmst frá því að segja að lokkarnir seldust á 18.300 dollara, jafnvirði tæplega 2,3 milljóna íslenskra króna. En hárið var ekki það eina sem harðir Presley-aðdáendur áttu kost á að bjóða í heldur bauð Leslie Hindman-uppboðshúsið einnig upp á bómullarskyrtu með ísaumuðu fangamarkinu EP, upphafsstöfum nafns rokkarans. Hún fór á eina 62.800 dollara sem jafngildir tæplega 7,8 milljónum króna. Forsvarsmenn Leslie Hindman mega vera sáttir við sinn hlut, af þeim 200 hlutum úr fórum Presley sem boðnir voru upp seldust langflestir hærra verði en spáð hafði verið. Vonandi fékk sá kaupandi sem hreppti hárið ekki falsaða vöru í hendur því engar DNA-prófanir voru gerðar á lokkunum. John Reznikoff hjá Leslie Hindman fullyrti hins vegar við fjölmiðla að sérfræðingur í hári frægra persóna, eða celebrity hair authentication eins og það heitir á engilsaxneskunni, hafi kveðið upp þann úrskurð að hárið samræmist því hári af Elvis sem sá eigi í sýnasafni sínu. Þá þarf víst enginn að kvíða neinu.
Mest lesið „Hvað eruð þið að biðja mig um og hvers vegna? Hvar ætti ég að hafa dvalið?“ Innlent Áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang: „Stend þarna bara náföl og hágrátandi“ Innlent Íslandi lýst sem „nútíma fámennisveldi“ uppfullu af spillingu Innlent Hormússundi lokað á ný Erlent „Ég var gjörsamlega svo hissa að ég vissi ekki hvert ég ætlaði“ Innlent Kölluð út á hæsta forgangi vegna sundmanns í Þingvallavatni Innlent Leiðir saman týnda hluti og eigendur þeirra Innlent Bretar og Frakkar ætla að leiða aðgerðir við Hormússund Erlent Miðflokkurinn á Hornafirði segir ásakanirnar fjarri sanni Innlent Prestur afþakkar „ömurlegan málflutning“ Miðflokksins Innlent Fleiri fréttir Skotið þrátt fyrir heimild frá hernum: Áhafnir tilkynna árásir á Hormússundi Funduðu með forstjóranum þrátt fyrir lögsókn Hormússundi lokað á ný Bretar og Frakkar ætla að leiða aðgerðir við Hormússund Hormússundið opið á ný Vopnaðir ræningjar héldu 25 í gíslingu í banka á Ítalíu D4vd handtekinn vegna gruns um að hafa banað táningsstúlku Mandelson veitt öryggisheimild þrátt fyrir að hafa fallið á bakgrunnsathugun Brothætt vopnahlé í Líbanon hefur tekið gildi Boðar tíu daga vopnahlé milli Ísraels og Líbanon Páfinn skaut föstum skotum að harðstjórum Íranir geti valið auðveldu leiðina eða þá erfiðu Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Viðræður sagðar standa yfir en ekkert fast í hendi Að minnsta kosti fimmtán létust í árásum Rússa á Úkraínu Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Gríðarleg vonbrigði meðal kennara með orð Ingu Sæland í morgun Flóttamenn drukknuðu þegar yfirfullum togara hvolfdi Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Sjá meira