Leikskólastjóri í Sjálandi: Rýmingin gekk vel Sólmundur Hólm Sólmundarson skrifar 16. júní 2009 13:28 Frá leikskólanum Sjáland í Garðabæ. Myndin er tekin af vef leikskólans. „
Hér er allt með kyrrum kjörum," segir Ída Jensdóttir, leikskólastjóri á leikskólanum Sjálandi í Garðabæ. Reykur kom upp í rafmagnstöflu leikskólans í dag og þurfti að kalla til slökkvilið. „Þetta var enginn eldur, bara reykur." Ída segir að börnin hafi verið róleg yfir atburðinum. Að loknu starfi slökkviliðsins fengu þau að skoða búnaðinn sem það býr yfir og þótti mikið til koma. Hluti af börnunum var inni í húsinu þegar reykurinn kom upp. „Rýmingin gekk mjög vel og bæði börnin og kennararnir eiga hrós fyrir. Við fengum einmitt hrós fyrir góð viðbrögð hjá slökkviliðinu," segir Ída en leikskólinn er með vel ígrundaða viðbragðsáætlun þegar svona aðstæður koma upp. Ída telur að börnin hafi ekki orðið fyrir áfalli vegna atburðarins. „Það myndi ég ekki ætla. Við þurftum auðvitað að fara snögglega út en það var enginn æsingur í gangi," segir Ída. Hún segir engar skemmdir vera á húsinu utan við rafmagnstöflu en hluti hússins er enn án rafmagns. Hún segir foreldra hafa brugðist við fregnunum af mikilli ró. „Við sendum strax út tilkynningu og það hefur enginn komið til þess að sækja barnið sitt."
Tengdar fréttir Eldur í rafmagnstöflu í leikskóla í Garðabæ Eldur kom upp í rafmagnstöflu í leikskólanum Sjálandi í Garðabæ í morgun. Vel gekk að slökkva eldinn að sögn vaktstjóra hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu og voru öll börnin komin út úr skólanum þegar slökkviliðið bar að garði og gekk rýmingin vel. 16. júní 2009 11:30 Mest lesið Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Innlent „Það gerist ekkert ef ljósin eru slökkt“ Innlent Tvö erindi borist Þingvallanefnd vegna tónleika Kaleo Innlent Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Erlent Sex handteknir og um verulegt magn sterkra efna að ræða Innlent Eftirför lögreglu endaði á Sorpu Innlent Tveir handteknu starfsmenn Eimskipa Innlent „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Innlent Hafi selt alls konar fíkniefni í gegnum „Kannabis Inc“ Innlent Ný atvinnustefna vanmeti stærstu tæknibreytingu samtímans Innlent Fleiri fréttir Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Tvö erindi borist Þingvallanefnd vegna tónleika Kaleo „Það gerist ekkert ef ljósin eru slökkt“ Ný atvinnustefna vanmeti stærstu tæknibreytingu samtímans Eftirför lögreglu endaði á Sorpu Tveir handteknu starfsmenn Eimskipa Skorað á Guðmund að snúa aftur heim Slagsmál, falsað ökuskírteini og ölvunarakstur Keyrðu utan í bílinn í eftirförinni Endurskoða gjaldsvæði borgarinnar Verulegt magn fíkniefna og hönnunarbolli í vorgjöf Flogið til Vestmannaeyja til mánaðamóta „Þyngra fyrir fæti að fá vinnu“ Hælisleitendamálin settu þrýsting á Reykjanesbæ Vilja verða áheyrnarfulltrúar og hækka laun sín gríðarlega Unnar kjötvörur af matseðli í skólum: „Stranglega bannað að hafa pylsupartý“ Sex handteknir og um verulegt magn sterkra efna að ræða Ekki hægt að taka framboð gilt þó flokkur misskilji reglur Góðkunninginn í vikulangt gæsluvarðhald vegna smygls Kvikuhlaup enn líklegasta sviðsmyndin Áfrýja ekki dómi vegna dauða dóttur þeirra Slökkti í málskotsbeiðni Matvís vegna Flame Sundlaugar opnar lengur um helgar í sumar Hyggst banna mánaðarlega hækkun leigu Ari hlær að gagnrýni á myndbandið Kosningapallborð fréttastofu: Baráttan um Reykjanesbæ Fimm hundruð bleikjur sluppu úr landeldisstöð „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Betur fór en á horfðist við Mývatn: Lenti á þvervegi og tókst á loft Ekkert að frétta af rannsókn þjófnaðarins í Freysnesi Sjá meira
Eldur í rafmagnstöflu í leikskóla í Garðabæ Eldur kom upp í rafmagnstöflu í leikskólanum Sjálandi í Garðabæ í morgun. Vel gekk að slökkva eldinn að sögn vaktstjóra hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu og voru öll börnin komin út úr skólanum þegar slökkviliðið bar að garði og gekk rýmingin vel. 16. júní 2009 11:30