Haffi Haff tryllir lýðinn á fegurðarsamkeppni Möltu 20. júní 2009 06:00 Ætlar sér að sigra heiminn og það gerir hann ekki með því að vera alltaf heima á Íslandi.
Haffi Haff treður upp á mikilli fegurðarsamkeppni á Möltu og kemur fram á MTV hátíð þar. Helsta áhyggjuefnið er að stílistinn mikli á engin föt til að koma fram í. „Ég ætla að reyna að gera allt vitlaust," segir stílistinn og tónlistarmaðurinn Haffi Haff. Það stendur mikið til hjá Haffa en 4. júlí næstkomandi treður hann upp á mikilli fegurðarsamkeppni sem haldin er á Möltu - Miss World Jersey sem er eins konar forkeppni Miss World en bresku eyjarnar eru með sérstaka keppni í tengslum við það. Þá verður á sama tíma mikið MTV partý á Möltu og er ætlunin að Haffi komi þar fram einnig. „Það er ógeðslega gaman að fara út og gera eitthvað. Ég hef verið á fullu við að skemmta hér heima, eins mikið og ég get, en það er gaman að fara út. Maður sigrar ekki heiminn með því að vera alltaf á sama stað. Og það er tilgangurinn: Að sigra heiminn," segir Haffi Haff hress í bragði. Hann ætlar að flytja lagið „Control" sem hann sendi frá sér fyrir viku. Einnig Wiggle Wiggle Song sem íslendingar þekkja vel frá því hann söng það í forkeppni fyrir Eurovision-keppnina fyrir tveimur árum. Og ekki síst lagið Give me sexy sem er mjög vinsælt á Möltu. Ástæðan fyrir því að Haffi er þekkt stærð á Möltu er meðal annars þannig til komin að textahöfundur þess lags, Gerard James Borg, er einmitt búsettur á Möltu. Gerard er virtur í bransanum og hefur í nokkur skipti átt framlag Möltu í Eurovision-söngkeppnina auk þess að hafa starfað með stórstjörnum á borð við Missy Eliot, Alicia Keys, Sacha og Carola. „Hann er ótrúlega góður gæi en við höfum verið að vinna með honum að undanförnu. Ég ætla að reyna að fá Írisi Hólm sem syngur með mér í Control út. Annars veit ég ekki hverjir verða með í för. En þetta er stórkostlegt tækifæri og ég ætla að reyna að gera þetta eins vel og hægt er. Og vera fulltrúi Íslands. Sýna að hér á Íslandi er verið að gera góða hluti. Gera lög sem eiga erindi á alþjóðavettvang. Það er mikilvægast," segir Haffi og slær nú fram nokkru sem hlýtur að koma mörgum á óvart. „Annars verður þetta í góðu lagi. Einu áhyggjur mínar eru þær í hverju ég á að vera. Ég á ekkert til að vera í." Haffi Haff er einhver þekktasti stílisti landsins en hann segir að það sé svo að þó hann sé að stílisera nánast alla þá mæti hann sjálfur afgangi. „Ég á alltaf í vandræðum með það. Þetta er mesta stressið." Ekki er hægt að skilja við Haffa án þess að inna hann eftir ástamálunum en fjölmiðlar fjölluðu um ástalíf hans fyrir um hálfu ári. Haffi hlær spurður hvernig þau mál standi nú. „Það er enginn í mínu lífi núna. Það ræður enginn við mig. Það er allt í lagi. En það þarf alvöru mann til að geta höndlað mig. Og þeir eru ekki á hverju strái. Ég er einn og það er fínt."
Mest lesið Pissaði fyrir framan fólk í sjö klukkutíma á dag Menning Guðrún Ýr og Birnir í eina sæng Tónlist Rassaumhirða karla í sókn Lífið Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Lífið „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Lífið Hætt saman en ennþá vinir Lífið Enginn venjulegur sjötugur maður Gagnrýni „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Lífið Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Lífið Þreföld útgáfa Drake: „Þessi gaur er stærsti rappari allra tíma“ Tónlist Fleiri fréttir Hvað veistu um… árið 2010? Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Sjö heitustu brúðkaupstrendin í sumar „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Rassaumhirða karla í sókn Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn í Reykjavík Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Þegar tónlistin heltók lögmanninn Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Anthony Head er látinn Emilíana Torrini selur einbýlishús á 250 milljónir „Aldrei of seint að gera hlutina“ Sjá meira