Innlent

Aukaskattur lagður á starfsmenn Orkuveitunnar

Guðmundur Gunnarsson er formaður Rafiðnaðarsambands Íslands.
Guðmundur Gunnarsson er formaður Rafiðnaðarsambands Íslands.
Rafiðnaðarsamband Íslands mótmælir fyrirætlunum stjórnar Orkuveitunnar um að greiða eigendum fyrirtækisins 800 milljónir í arð. Eigendurnir séu með þessu að leggja aukaskatt á starfsmenn Orkuveitunnar.

Fyrirhuguð 800 milljón króna arðgreiðsla Orkuveitunnar til eigenda sinna, sem eru Reykjavíkurborg, Akranesbær og Borgarbyggð, hafa vakið hörð viðbrögð meðal starfsmanna Orkuveitunnar. Starfsfólkið er nýlega búið að samþykkja að taka á sig mikla kjaraskerðingu og launalækkanir sem skiluðu Orkuveitunni 400 milljónir. Starfsmönnum var sagt að þessi kjaraskerðing væri nauðsynleg til að koma í veg fyrir fjöldauppsagnir.

„Með því voru starfsmenn að láta af hendi um 400 milljónir króna til fyrirtækisins. Ljóst er að þær samþykktir munu falla úr gildi ef eigendur fyrirtækisins ætla sér að hrifsa til sín þessi framlög starfsmanna til síns fyrirtækis. Með þessari aðgerð eru þær sveitarstjórnir sem eiga Orkuveituna í raun að leggja 800 millj. kr. aukaskatt á starfsmenn Orkuveitunnar," segir í ályktun sem samþykkt var á fundi sambandsstjórnar Rafiðnaðarsambands sem haldinn var á Laugavatni í dag.

Stjórnin segir framkomu eigenda Orkuveitunnar við starfsmenn ósvífna og þess er krafist að ákvörðunin verði dregin umsvifalaust til baka. Bent er á að stutt sé síðan að eigendur Orkuveitunnar hafi nýtt fyrirtækið sem leikvöll þar sem nýta átti þekkingu þekkingu starfsmanna sem „söluvöru í glannalegum fjármálaævintýrum."


Tengdar fréttir

Kannast ekki við óánægju starfsmanna vegna arðgreiðslna

Hjörleifur Kvaran, forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur, kannast ekki við óánægju meðal starfsmanna fyrirtækisins um arðgreiðslur OR til eigenda. Hann segir að fyrirtækið hafi greitt eigendum sínum arð í mjög langan tíma og árlega, nokkuð óháð því hver útkoma fyrirtækisins hafi verið fjárhagslega.

Arðgreiðslur ræddar á stjórnarfundi á morgun

„Það er best að ég tjái mig ekki um þetta," sagði stjórnarmaður Orkuveitu Reykjavíkur, Kjartan Magnússon, um fyrirhugaðar arðgreiðslur til eiganda Orkuveitunnar upp á 800 milljónir.

Sakar stjórnendur Orkuveitunnar um þjófnað

Starfsmenn Orkuveitu Reykjavíkur eru æfir vegna fyrirhugaðrar 800 milljóna króna arðgreiðslu til hluthafa. Formaður Rafiðnarsambandsins sakar stjórnendur fyrirtækisins um þjófnað og krefst þess að Orkuveitan skili 400 milljónum sem hafðar voru af starfsmönnum með því að lækka laun þeirra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×