Smellirnir skiluðu litlu 12. desember 2009 07:15 Ingó og Toggi sömdu stórsmelli síðasta árs, Bahama og Þú komst við hjartað í mér. Á fimmtudaginn fengu þeir borgað fyrir útvarpsspilun ársins 2008 og eru ósáttir við það hvað poppsmellirnir gefa lítið af sér. „
Ég gef mömmu alltaf mjög flottar jólagjafir, en hún verður kannski aðeins flottari núna. Og svo ætla ég að skella mér á sólarströnd í viku fyrir peninginn. Ég var búinn að ákveða það. Fyrst ég grísaði á að semja þetta lag var ég búinn að ákveða að nýta innkomuna fyrir það í það sem lagið fjallar um," segir Ingó í Veðurguðunum, sem líkt og aðrir lagahöfundar fékk STEF-greiðslur útborgaðar á fimmtudaginn. Upphæðin sem nú er greidd út er fyrir útvarpsspilun árið 2008. Þá tröllreið lagið Bahama öllu. Ingó samdi lag og texta og var að auki að fá greitt fyrir lagið Drífu, sem kom í kjölfar Bahama og varð líka vinsælt. Ingó er þó ekki nema sæmilega sáttur og segir upphæðina fyrir bæði lögin lága. „Upphæðin stóðst engan veginn væntingar og var töluverð vonbrigði," segir hann. „Maður var aðeins búinn að pæla í þessu. Ég ætlaði að eyða svo og svo miklu í jólagjafir og leggja hitt til hliðar, en var svo sem ekkert búinn að eyða þessu fyrir fram. Ég var búinn að heyra í lagahöfundum sem sögðu að ég fengi svakaleg STEF-gjöld fyrir Bahama og var því orðinn nokkuð spenntur. Lagið hefur gefið mér ágætis tekjur fyrir utan þetta svo ég er svo sem ekkert að kvarta. Ég þarf nú samt að athuga þetta mál. Ég heyrði í lagahöfundi sem fékk meira en ég fékk fyrir Bahama fyrir lag sem var bara þokkalega vinsælt í fyrra. Ég set því stórt spurningarmerki við þetta allt saman og þarf að tékka á þessu niðri í STEF." Hinn stórsmellur síðasta árs var að sjálfsögðu Þú komst við hjartað í mér í flutningi Hjaltalín. Textinn er eftir Pál Óskar, en lagið sömdu Toggi (Þorgrímur Haraldsson) og Sveinbjörn Bjarki Jónsson. STEF-greiðslurnar fyrir hina ofurvinsælu útgáfu Hjaltalín renna á fjóra staði. Meðlimir Hjaltalín fá tvo punkta af tólf fyrir útsetninguna, Palli fær þrjá punkta, Bjarki tvo og Toggi fimm. Toggi er jafnvel fúlari yfir upphæð STEF-greiðslunnar en Ingó. „Maður er svo sem vanur því að vera ekki að moka inn peningum á þessu, en núna hélt ég að ég gæti ráðstafað einhverju af þessu og kannski átt einhvern afgang. En nei nei, það er aldrei þannig," segir Toggi og dæsir. Hann var í bílnum sínum þegar honum var sagt frá upphæð STEF-greiðslunnar. „Ég held að stýrinu hafi aldrei verið misþyrmt jafn harkalega áður," segir hann, flissar og bætir við: „Ég gæti svo sem skroppið á ströndina með Ingó, en ég var bara búinn að ráðstafa þessu í annað." Toggi ætlar að skoða málið ofan í kjölinn með STEF og vonast eftir leiðréttingu. „Það getur svo sem vel verið að þetta sé rétt reiknað hjá þeim," segir hann og bætir við: „En mér finnst bara mjög skrítið og asnalegt að maður semji vinsælasta lag ársins og sé að fá fyrir það sirka mánaðarlaun lagerstarfsmanns hjá Ísingu eða eitthvað. Þetta er út í hött!" drgunni@frettabladid.is.
Mest lesið Með sex sjúkdóma og ólæknandi mein en lætur ekkert stoppa sig Lífið Missti höndina viku fyrir sextán ára afmælisdaginn Lífið Myndaveisla: Samstaða og stolt í algleymingi í Gleðigöngunni Lífið Krakkatían: Afmælistónleikar, maraþon og bílpróf Lífið Nígerísk hjón reisa glerkastala í Kjós og flytja inn tonn af blómum til að gifta sig aftur Lífið Myndaveisla: Tröllatrukkur og Rolls Royce á svæðinu þegar hjónin gengu út Lífið Nígerískt stjörnubrúðkaup í Hallgrímskirkju Lífið Hvað er Labubu og hvers vegna eru allir að missa sig yfir því? Tíska og hönnun Fréttatía vikunnar: Gleðigangan, hafmeyjustytta og handtaka Lífið Hommar, lesbíur, trans fólk og fleiri sameinast í gleðinni Lífið Fleiri fréttir Krakkatían: Afmælistónleikar, maraþon og bílpróf Myndaveisla: Samstaða og stolt í algleymingi í Gleðigöngunni Með sex sjúkdóma og ólæknandi mein en lætur ekkert stoppa sig Missti höndina viku fyrir sextán ára afmælisdaginn Hommar, lesbíur, trans fólk og fleiri sameinast í gleðinni Fréttatía vikunnar: Gleðigangan, hafmeyjustytta og handtaka Myndaveisla: Tröllatrukkur og Rolls Royce á svæðinu þegar hjónin gengu út Bay segir skilið við Smith Nígerísk hjón reisa glerkastala í Kjós og flytja inn tonn af blómum til að gifta sig aftur Endar örugglega sem 83 ára drottning í Gleðigöngunni Hver er Endakallinn frá Ibiza? Nígerískt stjörnubrúðkaup í Hallgrímskirkju „Magnað innra ferðalag“ að horfast í augu við saklausa barnið í sér Fyrrverandi eiginmaður Kelly Clarkson látinn Íhuga að skrifa bók um kaffihúsin á þúsund kílómetra hjólarúnti McConaughey glutraði niður tækifærinu í Titanic Orðin vön ferðamönnum í garðinum og fagnar komu þeirra Hvers vegna fær Innrásin frá Mars núll í einkunn? Stutt í að uppselt verði í heilt og hálft Þríbætti tíma kærastans í einni stærstu spyrnukeppni Evrópu Eftir þrettán ára nám fékk Saga bílpróf Ástralskur hommasirkus skemmtir börnum og fullorðnum í Tjarnarbíói Húsgögn úr afgöngum og fiskar í gosbrunninum Stjörnulífið: „Þessi ætlar að ríða þessa Verslunarmannahelgina“ Kveður föður sinn með tilvitnun í Hunter S. Thompson Walking Dead-leikkona látin Tók sterkan kjúklingabita í stað þess að styggja Íslendinga Gekk hringinn í kringum landið fyrir vannærð börn í Afríku Marín Manda og Hannes Frímann trúlofuð Terry Reid látinn Sjá meira