Horn óx í auga hrúts og annan vantaði fót 5. desember 2009 04:30 Hornið á þessum hrúti hafði vaxið inn í augað á honum, þannig að hann var orðinn blindur á því. Augað var bólgið og það vessaði úr því.
Yfirvöld Tálknafjarðarhrepps og Vesturbyggðar bíða enn átekta eftir viðbrögðum þriggja ráðuneyta varðandi handsömun og slátrun útigangsfjár sem enn gengur laust á fjallshryggnum Tálkna. Í lok október náðust nítján kindur þaðan og var þeim slátrað. Þær voru í misjöfnu ásigkomulagi. Þeirra á meðal voru til dæmis hrútur með horn vaxið inn í auga, ær þar sem horn var um það bil að vaxa í auga og hrútur sem misst hafði neðan af fæti, að því er fram kemur í bókun dýraverndarráðs um málið. Enn eru fimm til sjö kindur eftir sem ekki náðust í smöluninni. Umhverfisráðherra vísaði málinu í haust til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytis, svo og dómsmálaráðuneytis til athugunar og umfjöllunar. Landbúnaðarráðuneytið skal fjalla um málið með tilliti til dýraverndunar og dómsmálaráðuneytið með tilliti til þess hvort lög hafi verið brotin við handsömun fjárins, að sögn Ragnars Jörundssonar bæjarstjóra Vesturbyggðar. „Ég held að það geti ekki í neinu tilliti flokkast undir dýraverndunarsjónarmið að láta skepnurnar ganga svona,“ segir Ragnar. Í hópnum sem eftir eru í Tálkna eru bæði ær og hrútar. Það má því búast við að féð fjölgi sér og fyrstu lömbin fæðist jafnvel í mars, meðan vetrarríki er enn á fjallshryggnum, að sögn Ragnars. Hann segir jafnframt að það stóra hlutfall hrúta sem var í hópnum sem náðist sýni að þeir hafi frekar komist á legg við harðan kost heldur en gimbrarnar, enda séu þeir harðgerari. Í ályktun dýraverndarráðs segir meðal annars að aðstæður á Tálkna séu þannig að „ekki er unnt að sinna eftirliti með dýrunum og grípa inn í til að koma í veg fyrir eða stöðva þjáningar þeirra. Af þessum ástæðum styður dýraverndarráð að féð sé fangað og því komið undir manna hendur“. Hins vegar harmar ráðið að við aðgerðirnar hafi dýr hrapað fyrir björg, en hefur skilning á að erfitt getur verið að koma í veg fyrir slíkt. Bændasamtök Íslands hafa samþykkt að „lýsa eindregnum stuðningi stjórnar Bændasamtaka Íslands við framgöngu yfirvalda í Vesturbyggð og Tálknafjarðarhreppi við að framfylgja lögum um fjallskil og búfjárhald“. jss@frettabladid.is
Mest lesið Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag Innlent „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Innlent Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Innlent Stórfelld líkamsárás og aðstoð mistúlkuð sem innbrot Innlent „Við verðum að fá fólk heim aftur“ Innlent Merz segir Írani spila með Bandaríkjastjórn Erlent Hvenær slítur maður viðræðum og hvenær slítur maður þeim ekki? Innlent Inga kemur Ingó til varnar Innlent Konungshjónin komin vestur um haf og Karl ávarpar þingið í dag Erlent Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Húsnæðismál í aðdraganda kosninga Sumarbúðir fatlaðra barna í húsi sem sé úr sér gengið Vongóður um að fundur með Apple skili árangri Hvenær slítur maður viðræðum og hvenær slítur maður þeim ekki? Stórfelld líkamsárás og aðstoð mistúlkuð sem innbrot „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag „Við verðum að fá fólk heim aftur“ „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegu tímabili að ljúka Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Sjá meira