Segir ofurstyrkina styðja málflutning sinn í borgarstjórn Breki Logason skrifar 13. apríl 2009 14:48 Ólafur F Magnússon
Ólafur F Magnússon borgarfulltrúi fagnar því að komið hafi í ljós hverjir helstu styrktaraðilar Framsóknarflokksins og Sjálfstæðisflokksins séu. Hann segir þetta styðja í einu og öllu sinn málflutning í borgarstjórn Reykjavíkur. Hann segist ætla að krefjast þess að Hanna Birna Kristjánsdóttir borgarstjóri svari því til hvort Landsbankinn hafi styrkt hana í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins. Ólafur hefur haldið því fram að Óskar Bergsson forseti borgarstjórnar hafi fengið ríflega styrki frá byggingarfélaginu Eykt í prófkjöri sínu. Nú hefur komið í ljós að Eykt var stærsti styrktaraðili Framsóknarflokksins og segir Ólafur það ekki koma sér á óvart. „Ég ætla að krefjast þess að Hanna Birna Kristjánsdóttir svari því til hvort hún hafi þegið styrki frá Samson, eða Landsbankanum, í prófkjöri sínu. Ég tel að það sé ástæða þess hvað hún snérist hart gegn eigin sannfæringu í Listaháskólamálinu," segir Ólafur. Hann segir það fagnaðarefni nú þegar hin ýmsu þrotabú séu gerð upp að í ljós komi hversu miklir ræningjaflokkar það séu sem enn myndi meirihluta í borgarstjórn Reykjavíkur. „Þessi meirihluti hefur að mínu mati verið á útopnu undir styrkri stjórn Eyktar-Skara og Samson-Birnu en þau ganga undir þessum nöfnum hjá okkur í Frjálslynda flokknum," segir Ólafur. „Þetta styður í einu og öllu minn málflutning en ég hef harðlega gagnrýnt þennan fyrirgreiðslumeirihluta. Ég geri mér vonir um að þegar kemur að því að þessi meirihluti neyðist til þess að svara fyrir þetta, haldi hann ekki út þetta kjörtímabil. Það er löngu ljóst að þau eru ekki siðferðilega hæf til þess," segir Ólafur sem staddur var úti í garði hjá sér þegar fréttastofa náði af honum tali. „Það kemur óneitanlega upp í huga minn nú að garðurinn minn kemur mun betur undan vetir en Sjálfstæðisflokkurinn. Þó hér sé ýmislegt sem komi fram þá er það ekkert í samanburði við öll spillingarmálin sem koma undna vetri hjá Sjálfstæðisflokknum. Ég vona því að það flæði loksins undan þessum blessuðu flokkum sem hafa arðrænt þjóðina völdum og eru enn við völd í borginni."
Mest lesið Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Innlent Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Innlent Almennur borgari veitti bílnum eftirför Innlent Tómas tjáir sig um dóminn Innlent Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Erlent Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni Innlent „Aulalegasti bófinn í bænum“ Innlent Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Innlent Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Innlent Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Innlent Fleiri fréttir „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Tulsi Gabbard lætur af embætti Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Íslendingur vann 336 milljónir króna Sektaður fyrir að vera á nagladekkjum Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Var í geðrofi þegar Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu var stofnað Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fer yfir dramatíkina Undrandi á að Tómas fengi ekki að verja sig Verðlaunuð fyrir að bjóða unglingum upp á Sveitasælu Nýtt húsnæði ráðuneytis Ingu kostar níu milljónir á mánuði Margrét Helga til Ríkisútvarpsins Nýr meirihluti í Hörgársveit Frumvarp um brottfararstöð úr nefnd í næstu viku Kjaftfullt í golfinu í Grindavík Vildi að betur hefði verið staðið að uppsögnum hótelstarfsfólks Sjá meira