Innlent

Reykvélin: Aftur reykur í sömu flugvél

Valur Grettisson skrifar
Aftur þurfti að snúa flugvél við vegna reyks í farþegarými.
Aftur þurfti að snúa flugvél við vegna reyks í farþegarými.

Flugvél frá Icelandair á leið til Bergen var snúið við í morgun vegna reyklyktar í farþegarými að sögn Guðjóns Arngrímssonar, upplýsingafulltrúa Icelandair.

Flugið hafði staðið í um 20 mínútur þegar flugstjóri tók ákvörðun um að snúa við. Um borð voru 102 farþegar.

Um er að ræða sömu flugvél og reykur kom upp í þann 4. júní síðastliðinn á leið frá París, vegna bilunar í hreyfli. Skipt var um hreyfil ytra eftir atvikið og framkvæmd viðhaldsskoðun á flugvélinni áður en henni var flogið til Íslands.

Flugið í morgun var fyrsta flug vélarinnar með farþega eftir atvikið. Ljóst er að reykjarlyktin í morgun stafaði frá einum af loftþrýstijöfnurum þotunnar, og er afleiðing bilunarinnar þann 4. júní síðastliðinn. Ekki var hætta á ferðum, en farþegar urðu fyrir óþægindum.

Boðið var upp á áfallahjálp við komuna til Keflavíkur, eins og venja er við slíkar aðstæður.

Vélin lenti á heilu og höldnu á Leifsstöð klukkan níu í morgun. Að sögn Guðjóns var ekki mikill viðbúnaður vegna reykjarlyktarinnar.


Tengdar fréttir

Farþegar fengu áfallahjálp

Guðjón Arngrímsson upplýsingafulltrúi Icelandair segir að einhverjir farþegar hafi þegið áfallahjálp sem boðið var uppá eftir að vél félagsins þurfti að lenda á Gatwick flugvelli í London eftir að reykur kom upp í farþegarými vélarinnar. Vélin var að koma frá París og átti að lenda í Keflavík. Guðjón segir að útlit sé fyrir að allir farþegarnir komist áfram til íslands í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×