Innlent

Farþegar fengu áfallahjálp

Guðjón Arngrímsson
Guðjón Arngrímsson
Guðjón Arngrímsson upplýsingafulltrúi Icelandair segir að einhverjir farþegar hafi þegið áfallahjálp sem boðið var uppá eftir að vél félagsins þurfti að lenda á Gatwick flugvelli í London eftir að reykur kom upp í farþegarými vélarinnar. Vélin var að koma frá París og átti að lenda í Keflavík. Guðjón segir að útlit sé fyrir að allir farþegarnir komist áfram til íslands í kvöld.

„Þeir komast þá með vél frá okkur frá London í kvöld og hugsanlega með vél frá Iceland Express sem er að fara frá Gatwick í kvöld, við vinnum nú í því að koma öllum til skila," segir Guðjón.

Hann segir að einhverjir farþegar hafi þegið áfallahjálp en áfallahjálparteymi var á meðal farþega eftir að vélinni var lent. Ekki er vitað hvað olli reyknum í farþegarýminu en eftir að flugstjóri vélarinnar hafði slökkt á öðrum hreyflinum minnkaði reykurinn.

Guðjón segir að fyrst sé hugsað um öryggi farþega og um að koma þeim áleiðis, síðan verði farið í það að skoða hvað olli reyknum.

„Mér skilst á þeim sem ég hef talað við að fólk beri sig mjög vel og hafi mestan áhuga á að komast áfram til Íslands."


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×