Lífið

Skriður kominn á Baywatch-myndina

David Hasselhoff og vinir í Baywatch verða loks að kvikmynd. Handritshöfundurinn Jeremy Garelick mun leikstýra kvikmyndinni.
David Hasselhoff og vinir í Baywatch verða loks að kvikmynd. Handritshöfundurinn Jeremy Garelick mun leikstýra kvikmyndinni.

Svo virðist sem nýjasta tískan í Hollywood séu kvikmyndir og sjónvarpsþættir frá níunda áratugnum. Nýlega var tilkynnt að gera ætti kvikmynd eftir sjónvarpsþáttunum The A-Team og í vikunni varð ljóst að lögregluhetjan T.J. Hooker myndi rata á hvíta tjaldið.

Aðdáendur Strandvarðanna eða Bay-watch ættu síðan að halda niðri í sér andanum því Paramount-kvikmyndaverið hefur fengið handritshöfundinn Jeremy Garelick til að skrifa handrit eftir sjónvarpsþáttunum þar sem fáklæddir og stæltir strandverðir trylltu karl- og kvenþjóð heims með hægum hlaupaatriðum eftir strandlengjunni í rauðum sundfötum, svo ekki sé minnst á björgunarhringina góðu.

Garelick þessi hefur náð nokkrum frama í kvikmyndaborginni enda er hann maðurinn á bak við handritið að kvikmyndinni The Hangover sem nú hefur skilað nokkrum milljörðum dala í gróða. Forstjóri Paramount, Adam Goodman, er síðan mikill aðdáandi Baywatch og tók verkefnið með sér frá Dream Works. Hann vildi ólmur nýta sér krafta Garelicks til að koma hugmyndinni á koppinn og því gætu nýjar Pamelur, Yasmine Bleeth og Tracy Bingham litið dagsins ljós áður en langt um líður, svo ekki sé talað um nýjan David Hasselhoff, enda ólíklegt að sá gamli fái að endurtaka hlutverk sitt.

Garelick hefur hins vegar viðurkennt í samtölum við fjölmiðla að hann hafi ekki séð einn einasta Baywatch-þátt, og mönnum þykir það nokkuð djörf yfirlýsing. „Þarna er hins vegar komið tækifæri til að heiðra mitt eftirlætisgrín; Police Academy og Stripes,“ sagði Garelick. við Variety.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.