Skriður kominn á Baywatch-myndina 9. júlí 2009 04:15 David Hasselhoff og vinir í Baywatch verða loks að kvikmynd. Handritshöfundurinn Jeremy Garelick mun leikstýra kvikmyndinni.
Svo virðist sem nýjasta tískan í Hollywood séu kvikmyndir og sjónvarpsþættir frá níunda áratugnum. Nýlega var tilkynnt að gera ætti kvikmynd eftir sjónvarpsþáttunum The A-Team og í vikunni varð ljóst að lögregluhetjan T.J. Hooker myndi rata á hvíta tjaldið. Aðdáendur Strandvarðanna eða Bay-watch ættu síðan að halda niðri í sér andanum því Paramount-kvikmyndaverið hefur fengið handritshöfundinn Jeremy Garelick til að skrifa handrit eftir sjónvarpsþáttunum þar sem fáklæddir og stæltir strandverðir trylltu karl- og kvenþjóð heims með hægum hlaupaatriðum eftir strandlengjunni í rauðum sundfötum, svo ekki sé minnst á björgunarhringina góðu. Garelick þessi hefur náð nokkrum frama í kvikmyndaborginni enda er hann maðurinn á bak við handritið að kvikmyndinni The Hangover sem nú hefur skilað nokkrum milljörðum dala í gróða. Forstjóri Paramount, Adam Goodman, er síðan mikill aðdáandi Baywatch og tók verkefnið með sér frá Dream Works. Hann vildi ólmur nýta sér krafta Garelicks til að koma hugmyndinni á koppinn og því gætu nýjar Pamelur, Yasmine Bleeth og Tracy Bingham litið dagsins ljós áður en langt um líður, svo ekki sé talað um nýjan David Hasselhoff, enda ólíklegt að sá gamli fái að endurtaka hlutverk sitt. Garelick hefur hins vegar viðurkennt í samtölum við fjölmiðla að hann hafi ekki séð einn einasta Baywatch-þátt, og mönnum þykir það nokkuð djörf yfirlýsing. „Þarna er hins vegar komið tækifæri til að heiðra mitt eftirlætisgrín; Police Academy og Stripes,“ sagði Garelick. við Variety.
Mest lesið Nicole er fyrir norðan Lífið Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Lífið Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Lífið Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Lífið Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Bestu hlutverk Hayden Panettiere Bíó og sjónvarp Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Leikkonan Hayden Panettiere er látin Lífið Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Lífið Fleiri fréttir Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Sjá meira