Hjúkrunarfræðingar andsnúnir tilfærslu 14. desember 2009 12:44 Elsa B. Friðfinnsdóttir, formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga. Mynd/Anton Brink
Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga leggst alfarið gegn þeim hugmyndum ríkisstjórnarinnar að færa alla þjónustu við aldraða á hjúkrunarheimilum til félags- og tryggingamálaráðuneytis. Stjórn félagsins hvetur þingmenn til að greiða atkvæði gegn fyrirhuguðum flutningi þegar frumvarp til fjárlaga 2010 verður tekið til afgreiðslu á Alþingi. „Stefna stjórnvalda er og hefur verið að gera öldruðum kleift að búa sem lengst á eigin heimili með viðeigandi aðstoð. Sú stefna leiðir af sér að þeir öldruðu einstaklingar sem flytjast á hjúkrunarheimili eru eldri en áður var og þeir glíma alla jafna einnig við fjölþættari og alvarlegri heilsufarsvandamál en áður. Þeir flytjast á hjúkrunarheimili til að fá hjúkrun og aðra heilbrigðisþjónustu en ekki sem félagslegt búsetuúrræði," segir í ályktun stjórnar Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga. Þar segir að vistunarmat liggi til grundvallar flutnings fólks á hjúkrunarheimili enda hafi önnur úrræði svo sem sérhæfð dagvist, hvíldarinnlögn og heimahjúkrun verið reynd til fulls. Stjórnvöld boði að fagleg stjórnun og eftirlit með hjúkrunarheimilum verði áfram hjá heilbrigðisráðuneytinu. Stjórn félagsins leggur áherslu á að fagleg og fjárhagsleg yfirstjórn fari saman og falli undir eitt og sama ráðuneytið. Slík skipan auki líkur á faglegri og réttlátri þjónustu. „Í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar kemur fram að stefnt sé að því að málefni aldraðra færist til sveitarfélaga samhliða því að heilbrigðisráðuneyti og félags- og tryggingamálaráðuneyti sameinist. Stjórn Fíh skorar því á stjórnvöld að hætta við boðaðan flutning hjúkrunarheimila frá heilbrigðisráðuneyti til félags- og tryggingamálaráðuneytis nú um áramótin," segir í ályktun stjórnarinnar.
Mest lesið Lokuðu flugbraut vegna dróna Innlent Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais Innlent „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Innlent Sænskur Evrópuþingmaður kærir danskan kollega til lögreglu Erlent Gagnrýnin byggð á misskilningi Innlent McConnell birtir mynd af sér á spítala Erlent Gæti orðið hálf milljón árið 2037 Innlent Innbrot í kirkju á höfuðborgarsvæðinu Innlent „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Innlent Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Innlent Fleiri fréttir Brotist inn í Fíladelfíuna og gítar stolið Gæti orðið hálf milljón árið 2037 Gagnrýnin byggð á misskilningi Innbrot í kirkju á höfuðborgarsvæðinu Lokuðu flugbraut vegna dróna Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Sektuðu í grennd við Símamótið „Við erum að svara kalli tímans“ Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Á fimmta tug barna vilja sækja skóla í Grindavík „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Hvalur skaut up kollinum í Hólmavík Mælirinn segir 33 gráður „Af og frá“ að Ísland framselji löggjafarvaldið með inngöngu Atvinnulausum í byggingariðnaði fjölgar gríðarlega Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Brotist inn og peningaskápur tekinn Þrír gistu í fangageymslu og töluvert um fölsuð skilríki Hitabylgjur, fullveldi og Megas Þrír handteknir grunaðir um líkamsárás Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Túlka verði niðurstöðurnar af varfærni Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Sjá meira