Innlent

Júlíus Vífill vill annað sætið

Mynd/GVA
Júlíus Vífill Ingvarsson borgarfulltrúi hefur ákveðið að bjóða sig fram í 2. sætið í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins fyrir komandi borgarstjórnarkosningar í Reykjavík. Hann skipaði 5. sæti á lista sjálfstæðismanna í kosningunum 2006.

„Ég mun leggja áherslu á að halda áfram því góða starfi sem unnið hefur verið í Reykjavík á þessu kjörtímabili. Það er ljóst að á þessum erfiðu tímum í efnahagsmálum þjóðarinnar þarf að sýna aðhald og forgangsraða verkefnum upp á nýtt," segir Júlíus Vífill í tilkynningu.

Borgarfulltrúinn segir mikilvægt að grunnþjónustan haldist óbreytt og að velferðarmál verði ekki skert. „Sveitarfélög landsins gegna mikilvægu hlutverki í því að verja hag heimila og fjölskyldna. Um leið þarf að tryggja uppgang og vöxt atvinnulífsins."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×