Bjarni fagnar samningum um bankana Jón Hákon Halldórsson skrifar 20. júlí 2009 15:36 Bjarni Benediktsson segir mikilvægt að lágmarka áhættu ríkisins vegna bankanna. Mynd/ Anton. „
Það sem við höfum lagt áherslu á varðandi endurreisn bankanna er að lágmarka áhættu ríkisins," segir Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, um samninga sem ríkið og skilanefndir bankanna hafa kynnt vegna endurreisnar bankakerfisins. „Þetta samkomulag sem virðist vera að takast felur í sér að áhætta ríkisins verður minni en í stefndi framan af í viðræðuferlinu. Og það er ekki hægt að gera annað en að fagna því sérstaklega," segir Bjarni. „Við höfum líka lagt áherslu á að reyna að skapa hvata fyrir erlendu kröfuhafana og þá sem fjármagnað hafa íslenska bankakerfið til þess að gera það áfram," segir Bjarni og bendir á að sú lausn sem er í sjónmáli sé til þess fallin. „Þannig að heilt yfir lítur þetta vel út og þetta er mikilvægur áfangi," segir Bjarni. Hann segist vona að þau plön sem búið er að kynna gangi eftir. „Næsta skref í þessum málum eftir að endurreisn banaknna verður lokið er að huga að aðgerðum fyrir heimilin og atvinnustarfsemi í landinu og það er mikilvægt að skilningur verði hjá nýjum eigendum bankanna á þeim bráðarvanda sem við er að etja," segir Bjarni. Bjarni bendir á að það hafi verið til tjóns hversu mikið endurreisn bankakerfisins hafi dregist en ítrekar mikilvægi þess að eignarhaldi bankanna verði komið í hendur erlendra aðila og áhætta ríkisins verði lágmörkuð. Slíkt sé í takti við þær áherslur sem sjálfstæðismenn hafi haft.
Mest lesið Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert Innlent Húsið að Mosfelli tekið í gegn og biskup flytur inn Innlent Hyggst kanna hug íbúa til áforma í Finnafirði Innlent Lést í kjölfar krabbameinsgreiningar Lífið „Þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur“ Innlent Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent Móðirin sem Bandaríkjamenn deila um Erlent Íslendingar voru alræmdir og lítið traust á milli Innlent Fleiri fréttir Fyrstu tölur sýna líklega fleiri nei en já Stútur „með allt í skrúfunni“ Húsið að Mosfelli tekið í gegn og biskup flytur inn Þyrluútköllum fjölgað verulega milli ára Hyggst kanna hug íbúa til áforma í Finnafirði Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert „Þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur“ „Það verður ekki þjónusturof við þessar breytingar“ Fjörutíu og eitt þúsund þegar greitt atkvæði „Það er ekkert við þetta mannúðlegt“ Gagnrýna vinnubrögð meirihlutans: „Allt stefnir í hryllilegt haust” Kvöldfréttir: Hildur og Pétur mætast í beinni um uppsagnir Fyrsta háskólasamstæða landsins tekin til starfa Íslendingar voru alræmdir og lítið traust á milli Hætta að keyra fjarskiptastaði með ljósavélum Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu „Það var gott að ná þessu fyrir nóttina“ Ný könnun: Dregur saman milli fylkinga Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara varlega „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Sjá meira