Tæp tíu prósent af málunum til FME 10. desember 2009 06:00 Gunnar Andresen, forstjóri FME Mynd/Stefán Karlsson
Seðlabanki hefur sent Fjármálaeftirlitinu (FME) tilkynningu um mál 22 lögaðila af þeim 110, sem bankinn hefur tekið til athugunar vegna meintra brota á lögum og reglum um gjaldeyrismál. Alls hefur Seðlabankinn tekið mál 110 lögaðila og 134 einstaklinga til athugunar vegna gruns um brot á lögum um gjaldeyrismál. Viðskiptin nema samtals 57,5 milljörðum króna, þar af um 53 milljörðum hjá lögaðilum. Meðalfjárhæð viðskipta lögaðila er því um 520 milljónir króna en hjá einstaklingum er meðalfjárhæðin um 34 milljónir króna. Skoðun á málum 100 lögaðila og einstaklinga til viðbótar er í undirbúningi. Hvorki FME né Seðlabankinn vilja veita upplýsingar um fjárhæðir, meinta brotamenn eða málsatvik í einstökum málum. Upplýsingafulltrúi FME segir í tölvuskeyti til Fréttablaðsins að niðurstöður úr málunum 22 verði birtar „í fyllingu tímans". Þeir sem kærðir eru komi úr mismunandi starfsgreinum. Það gæti spillt rannsókn að veita upplýsingar. Ríkir rannsóknarhagsmunir séu í húfi. Um leið og gjaldeyrishöftin voru sett eftir bankahrunið voru viðurlög við brotum hert. Seðlabankinn er eftirlitsaðili og er skylt að tilkynna Fjármálaeftirlitinu vakni grunur um gjaldeyrisbrot. Brot geta varðað stjórnvaldssektum eða allt að tveggja ára fangelsi. Heimilt er að gera beinan og óbeinan hagnað upptækan að fenginni dómsniðurstöðu. Stjórnvaldssektirnar geta numið allt að 75 milljónum króna á lögaðila og en 20 milljónum á einstaklinga. Sektirnar verða aðfararhæfar, það er innheimta má þær með fjárnámi og nauðungarsölu án sérstakrar dómsmeðferðar. Við rannsókn er FME heimilt að krefjast kyrrsetningar á eignum bæði einstaklinga og lögaðila. Ef brot eru talin varða bæði stjórnvaldssektum og refsingu er FME heimilt að meta hvort eingöngu er beitt sektum eða hvort mál er kært til lögreglu og fær þar meðferð að hætti opinberra sakamála. Þó er skylt að kæra til lögreglu ef brot er meiriháttar. Skilgreining laganna á meiriháttar brotum er að það lúti „að verulegum fjárhæðum" eða sé framið „með sérstaklega vítaverðum hætti eða við aðstæður sem auka mjög á saknæmi brotsins". Þórólfur Matthíasson hagfræðiprófessor áætlaði í Fréttablaðinu í gær út frá gengi krónunnar á aflandsmarkaði að hagnaður af þessum viðskiptum gæti mest numið um helmingi viðskiptanna, en líklega mun lægri fjárhæð í flestum tilvikum. peturg@frettabladid.is
Mest lesið Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Innlent „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Trump vill ekki flýta sér Erlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Innlent Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Innlent „Ekki í lífshættu“ Innlent Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Innlent „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ Innlent Fleiri fréttir „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Sjá meira