Lífið

Fótboltakappi gerist rappari

Fótboltakappinn stígur fram á sjónarsviðið sem rappari á Sódómu Reykjavík á föstudagskvöld.
fréttablaðið/anton
Fótboltakappinn stígur fram á sjónarsviðið sem rappari á Sódómu Reykjavík á föstudagskvöld. fréttablaðið/anton

Fótboltakappinn Daníel Hjaltason stígur fram á sjónarsviðið sem rappari í fyrsta sinn á föstudagskvöld þegar haldnir verða tónleikar á Sódómu Reykjavík undir yfirskriftinni „Verkalýðs-Hiphop“.

Daníel, sem er samningsbundinn Val, kallar sig Jigz þegar kemur að rappinu og er hvergi banginn. „Ég byrjaði að semja rapptexta árið 1992 þegar ég var fjórtán ára. Þá voru Kris Kross mjög heitir,“ segir hann og kímir. Síðan þá hefur rappið verið hans aðaláhugamál ásamt boltanum og hefur hann einmitt sameinað þetta tvennt með því að semja lög um liðsfélaga sína. „Þegar maður fær leið á fótbolta er hægt að fá útrás í þessu og öfugt,“ segir Daníel og telur áhugamálin tvö passa einkar vel saman.

Nýlega tók hann upp sína fyrstu plötu, Lo-Fi Lover, og setti hana á heimasíðu sína án endurgjalds. „Ég hef alltaf verið að taka upp en er tiltölulega nýlega kominn með aðstöðu heim til mín. Ég hef yfirleitt verið að nota græjurnar hjá pabba,“ segir hann og á þar við Hjalta Gunnlaugsson, sem heldur einmitt tónleika í Fíladelfíu 20. maí næstkomandi.

Eins og faðir hans er Daníel ekki óvanur því að syngja opinberlega því fyrir nokkru síðan söng hann með Gospelkór Reykjavíkur á Kristnihátíð við góðar undirtektir. Spurður hvort hann ætli að einbeita sér að rappinu í framtíðinni segir hann: „Ég er í rauninni að taka upp til að hafa gaman af þessu. Mig langar að spila hér og þar og sjá hvað gerist.“

Auk Jigz koma fram á tónleikunum á Sódómu flytjendur á borð við Forgotten Lores og BlazRoca og því ljóst að hann verður í öruggum höndum þetta jómfrúarkvöld sitt í rappinu. - fb






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.