Innlent

Engar breytingar fyrirhugaðar á losunarheimildum

Frá álveri Alcoa Fjarðaráls á Reyðarfirði. Mynd/Hreinn Magnússon
Frá álveri Alcoa Fjarðaráls á Reyðarfirði. Mynd/Hreinn Magnússon
Formaður samninganefndar Íslands um loftslagsmál segir að engar breytingar séu framundan á losunarheimildum íslenskra stóriðjufyrirtækja fram til ársins 2012. Árið 2013 muni íslensk stóriðja hins vegar fá allar sínar heimildir í gegnum evrópska kerfið og standa jafnfætis evrópskum fyrirtækjum í orkufrekum iðnaði.

Umhverfisráðherra lýsti því yfir í vikunni að ekki yrði sótt um frekari undanþágur frá Kyoto bókuninni. Vigdís Hauksdóttir, þingmaður Framsóknarflokks, sagði á Alþingi í vikunni að ráðherrann væri með þessu að afsala sér fyrir hönd þjóðarinnar verðmætum loftslagskvóta.

Þórir Ibsen, formaður samninganefndar Íslands um loftslagsmál, segir að engar breytingar séu framundan á losunarheimildum íslenskra stóriðjufyrirtækja fram til ársins 2012, þegar svokölluðu fyrsta skuldbindingartímabili Kyoto bókunarinnar lýkur. Á því tímabili fylgi íslensk stóriðjufyrirtæki þeim reglum sem séu í gildi í dag.

„Það verða hinsvegar breytingar 2013 því þá mun íslensk stóriðja falla undir evrópskar reglur og á allar sínar heimildir í gegnum það kerfi," segir Þórir.

Þá muni íslensk fyrirtæki standa jafnfætis sambærilegum evrópskum fyrirtækjum í stóriðju eða orkufrekum iðnaði. „Gert er ráð fyrir að þau fyrirtæki fái í fyrstu að megninu til allar sínar þarf á losunarheimildum fríar en síðan mun draga úr þeim smátt og smátt til 2027."

Þórir segir að breytingarnar felast í því að íslensku stóriðjufyrirtækin muni ekki fá sinn kvóta í gegnum Ísland heldur sem fyrirtæki. Alveg eins og önnur evrópsk fyrirtæki. „Fyrirtæki sem starfa á evrópskum markaði fá útdeilt árlega ákveðnum fjölda á losunarheimildum."

Sú ákvörðun verður miðuð við gæðaviðmið, hversu vel fyrirtæki standa sig umhverfislega. Þórir segir að íslensk fyrirtæki séu í hópi bestu fyrirtækja í Evrópu hvað varðar umhverfisstaðal.

Þórir segir að ekkert í sínu umboði miði að því að valda tjóni fyrir íslensk fyrirtæki eða fjárhagslegu tjóni fyrir samfélagið. Þvert á móti sé það markmiðið að íslensk fyrirtæki standi jafnfætis öðrum evrópskum fyrirtækjum á evrópskum markaði.


Tengdar fréttir

Óánægður með ákvörðun Svandísar

Yfirlýsingar umhverfisráðherra um að nýta ekki undanþágur frá Kyotobókuninni eru vonbrigði að mati Illuga Gunnarssonar, þingmanns Sjálfstæðisflokksins. Miklir fjárhagslegir hagsmunir séu í húfi.

Fráleitt að ráðherra hafi afþakkað milljarða

Fullyrðingar um að Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra afþakki 15 milljarða króna loftslagskvóta eru fráleitar og algerlega úr lausu lofti gripnar að sögn umverfisráðuneytisins. Vigdís Hauksdóttir þingkona Framsóknarflokksins hélt því fram á Alþingi á dögunum að með því að óska ekki eftir undanþágu frá Kyoto bókuninni svokölluðu hafi Svandís afsalað sér fyrir hönd þjóðarinnar einum fimmtán milljörðum króna.

Segir Svandísi afþakka 15 milljarða

Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra lýsti því yfir í morgun að hún ætlaði ekki að sækja um undanþágur frá Kyoto-bókuninni fyrir mengandi stóriðju. Vigdís Hauksdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, segir að þar með hafi umhverfisráðherra afsalað sér fyrir hönd þjóðarinnar fimmtán milljarða króna verðmætum.

Engin undanþága í boði fyrir Ísland

Frá og með árinu 2013 mun losun gróðurhúsalofttegunda vegna álframleiðslu falla undir tilskipun ESB um viðskipti með gróðurhúsalofttegundir. Sérstök undanþága fyrir Ísland verður því ekki í boði á loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Kaupmannahöfn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×