Innlent

Segir seðlabankastjóra ekki hugsa um hag þjóðarinnar

Höskuldur Þórhallsson þingmaður Framsóknarflokksins.
Höskuldur Þórhallsson þingmaður Framsóknarflokksins.

Viðbrögð Davíðs Oddssonar seðlabankastjóra við óskum forsætisráðherra um að hann víki úr bankanum eru afar slæm að mati Höskuldar Þórhallssonar, þingmanns Framsóknarflokksins. Davíð sendi Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra bréf í dag og tilkynnti henni að hann myndi ekki víkja sæti úr bankastjórninni eins og Jóhanna hafði óskað eftir.

„Mér finnst þetta í rauninni vera afar slæmt. Þarna er seðlabankastjóri ekki að hugsa um hagsmuni þjóðarinnar," segir Höskuldur. Höskuldur segir að það sé að koma bersýnilega í ljós að það voru gerð mistök að setja pólitíkus inn í seðlabankann. „Nú er þetta farið að snúast um persónu hans sem það má alls ekki gera. Þjóðin þarf á því að halda að Seðlabankinn njóti trausts bæði hér innanlands og erlendis og það gerir hann ekki með Davíð við stjórnvölin," segir Höskuldur.

Davíð gerði mistök

Höskuldur segir að auk þess telji hann að það blasi við að Seðlabankinn og Davíð Oddsson hafi gert mistök. Í fyrsta lagi hafi hann ekki varað nægjanlega sterkt við stöðu bankanna. „Þegar að hann sagðist vera 100% viss um að bankakerfið myndi riða til falls, að þá átti hann ekki að linna látum fyrr en að menn myndu staldra við," segir Höskuldur. Hann bætir við að Davíð hafi jafnframt gert mistök með ummælum í Kastljósviðtali skömmu eftir bankahrunið.

Flutti sjálfur frumvarp

Höskuldur segir að næsta skref sé að afgreiða frumvarp í þinginu um breytingar á yfirstjórn Seðlabankans Hann segir jafnframt að hugsanlega hafi forsætisráðherra gert mistök með því að senda bréf til seðlabankastjóra og víkja sæti. Hugsanlega hefði verið betra að fá lögin samþykkt strax. „Ég var fyrsti flutningsmaður frumvarps um breytingu á yfirstjórn Seðlabankans sem er til meðferðar Alþingis. Og er mjög samhljóða því sem ríkisstjórnin hefur lagt fram þó að það sé blæbrigðamunur á þeim," segir Höskuldur sem telur að frumvarpið hans hefði átt að fá betra brautargengi. „Það hefði gert það að verkum að seðlabankastjórnin hefði þurft að víkja," segir Höskuldur.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×