Innlent

Indriði kallaður á fund fjárlaganefndar

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Indriði H. Þorláksson mætti á fund fjárlaganefndar í kvöld. Mynd/Anton Brink
Indriði H. Þorláksson mætti á fund fjárlaganefndar í kvöld. Mynd/Anton Brink
Indriði H. Þorláksson, sem sat í samninganefnd Íslendinga í Icesave deilunni, var kallaður á fund fjárlaganefndar Alþingis í kvöld.

Samkvæmt heimildum Vísis var Indriði krafinn skýringa á ákveðnum upplýsingum sem hafa ekki verið gerðar opinberar áður. Upplýsingarnar munu tengjast samningaviðræðunum sem fram fóru í vor.

Vegna skyndifundar í fjárlaganefnd hefur þingfundi ítrekað verið frestað í kvöld en gert var ráð fyrir að Alþingi lyki umfjöllun um málið í kvöld og atkvæði yrðu greidd um málið á morgun.

Gert er ráð fyrir að þingfundur hefjist klukkan tíu.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×