Vill leggja niður aðstoðarmannakerfi þingmanna 20. maí 2009 10:54 Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, forseti Alþingis. Mynd/Vilhelm Gunnarsson
Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, forseti Alþingis, telur að leggja eigi niður aðstoðarmannakerfi landsbyggðarþingmanna. Hún hefur beint því til þingmanna að þeir ráði sér ekki aðstoðarmenn. Forsætisnefnd tekur ákvörðun um málið eftir helgi. Alþingi samþykkti í mars 2008 lagafrumvarp Sturlu Böðvarssonar, þáverandi þingforseta, um aðstoðarmenn þingmanna og formenn stjórnarandstöðuflokka. Síðan þá hafa formenn stjórnmálaflokka í stjórnarandstöðu átt rétt á að ráða sér aðstoðarmann í fullt starf en þingmenn Norðvestur-, Norðaustur- og Suðurkjördæma átt rétt á að hafa aðstoðarmann í þriðjungsstarfi. Ásta var andsnúin fyrirkomulaginu þegar það var samþykkt á sínum tíma. Ásta segir að leggja eigi aðstoðarmannakerfið að minnsta kosti tímabundið niður. Kerfið þarfnist endurskoðunar og gæta verði aðhalds í ríkisútgjöldum. Málið var rætt á fyrsta fundi forsætisnefndar eftir að þing kom saman. Kostnaður við kerfið er meira en 60 milljónir á ári. Laun aðstoðarmanna, sem eru í þriðjungs-starfi, eru 25% af þingfararkaupi en þau eru 520 þúsund krónur á mánuði. Samkvæmt því eru mánaðarlaun aðstoðarmanna 130 þúsund krónur. „Ég hef óskað eftir því að þingmenn ráði sér ekki aðstoðarmenn vegna þess að kerfið verður væntanlega endurskoðað en það verður aftur tekið til umræðu í forsætisnefnd eftir helgi," segir Ásta.
Mest lesið Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Innlent Fjölskyldur hafi þegar hætt við að flytja aftur til Grindavíkur Innlent Rússar vígbúast við mörk Norðurlanda Erlent „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Innlent Marius sleppur ekki eftir allt saman Erlent Tryggvi Gíslason er látinn Innlent Stefna á að opna kaffistofuna síðar í þessum mánuði Innlent Þorsteinn Ólafsson er látinn Innlent Grikki með tugi kílóa kókaíns undir fölsku gólfi Innlent Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Innlent Fleiri fréttir Ríkisstjórnin beri ábyrgð á hindrunum Þórkötlu Óviðunandi að ákveðnir hópar barna búi enn við svo mikið úrræðaleysi Nýttu takmarkanir á sjúkraflugi til að þrýsta á borgina Ósáttir Grindvíkingar og undirbúningur fyrir þjóðaratkvæði að komast á fullt Fleiri andvígir inngöngu í ESB Þorsteinn Ólafsson er látinn Grikki með tugi kílóa kókaíns undir fölsku gólfi Starfsleyfi takmarkað vegna lyfjaávísana Leiðtogaskipti hjá Sósíalistaflokknum Bein útsending: Ræða öryggis- og stjórnmálasamstarf á Eystrasaltssvæðinu Fjölskyldur hafi þegar hætt við að flytja aftur til Grindavíkur Eldhúsdagur runninn upp Fræsa og malbika Reykjanesbraut við Smáralind í kvöld Tryggvi Gíslason er látinn Öskur, reykelsisfnykur, greiðslufall og gámarót Stefna á að opna kaffistofuna síðar í þessum mánuði Samþykkt frumvarpsins framkalli ekki sigurtilfinningu Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Hlekktist í lendingu á Egilsstaðaflugvelli Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Olíumengun í Kópavogslæk „Netglæpamenn munu nýta sér þetta hratt og á skaðlegan hátt“ No Borders hvetja til andspyrnu gegn brottfararstöð Hringbraut eins og rússnesk rúlletta Handtekinn á bíl með nagladekkjum „Þetta er hreinn uppspuni“ Fjöldi netbrota fjórfaldast og dómsmálaráðherra í beinni um brottfararstöð „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Umdeild brottfararstöð leidd í lög Sjá meira