Seðlabankastjóri skammar forsætisráðherra 24. febrúar 2009 15:15 Eiríkur er fyrir miðju.
Eiríkur Guðnason, seðlabankastjóri, skammar Jóhönnu Sigurðardóttir, forsætisráðherra í bréfi sem hann sendi henni í dag. Í bréfinu lýsir Eiríkur furðu sinni á vinnubrögðum og yfirlýsingum i sambandi við stjórnskipulagsbreytingar á Seðlabankanum. Í stað þess að sinna brýnum verkefnum í peningamálum og gjaldeyrismálum hafi miklum tíma verið eytt í óþarfa síðustu vikur að hans mati. ,,Haft var eftir yður að skipulagsbreyting sú sem felst í Seðlabankafrumvarpinu sé ,,undirstaðan undir ýmislegt sem að við erum að glíma við i efnahagsmálunum"," segir Eiríkur og bætir við að það sé furðuleg yfirlýsing í ljósi þeirra tafa sem orðið hafa að undanförnu. Eiríkur segir að frestur sem viðskiptanefnd Alþingis veitti Seðlabankanum til að vinna umsögn um frumvarpið hafi verið óeðlilega skammur. Sömuleiðis hafi það valdið töfum að lykilmönnum hafi verið vikið til hliðar og nefnir Ingimund Friðriksson, fyrrverandi seðlabankastjóra, í því samhengi. ,,Það er gríðarlega mikilvægt að tóm gefist til að sinna brýnum verkefnum í stað þess dreifa athyglinni eins og gert hefur verið með óvönduðum vinnubrögðum varðandi skipulag Seðlabankans og óviðeigandi yfirlýsingum í tengslum við það," segir Eiríkur.
Tengdar fréttir Seðlabankinn á dagskrá Alþingis en ekki í viðskiptanefnd Þriðja og síðasta umræðan um seðlabankafrumvarpið á að fara fram á Alþingi í dag. Þrátt fyrir það er frumvarpið ekki á dagskrá fundar viðskiptanefndar sem hófst klukkan hálf níu. ,,Þetta mál er ekki á dagskrá viðskiptanefndar," segir Álfheiður Ingadóttir formaður nefndarinnar. Hún útilokar þó ekki að einhver nefndarmanna taki málið upp undir liðnum önnur mál. 24. febrúar 2009 08:48 Vonast til að seðlabankafrumvarp komist á dagskrá í dag Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra sagðist í gærkvöldi vonast til þess að seðlabankafrumvarpið komist á dagskrá Alþingis í dag, eftir að þinghald fór út um þúfur í gær þegar ljóst varð að frumvarpið sæti fast í viðskiptanefnd. 24. febrúar 2009 07:21 Mikil óvissa um seðlabankafrumvarpið Mikil óvissa ríkir um það hvort seðlabankafrumvarp forsætisráðherra fer í þriðju og síðustu umræðu á Alþingi í dag. Málið er komið á dagskrá Alþingis en situr engu að síður fast í viðskiptanefnd. 24. febrúar 2009 12:01 Seðlabankafrumvarpið tekið af dagskrá Guðbjartur Hannesson, forseti Alþingis, tilkynnti í upphafi þingfundar í dag að seðlabankafrumvarpið hafi verið tekið út af dagskrá en upphafleg dagskrá gerði fyrir að málið til umræðu í dag. 24. febrúar 2009 13:32 Mest lesið „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Innlent Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Erlent Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi Innlent Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Erlent Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Erlent Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Innlent Hætta að styrkja Feneyjartvíæringinn vegna þátttöku Rússa Erlent Halda áfram umfangsmikilli leit að ferðamanni við Háafoss Innlent Kallar formann VR „ómerkilegan popúlista“ Innlent Ingó veðurguð hefur fengið meira en nóg Innlent Fleiri fréttir Varnargarðar á Reykjanesi: Verkefnið ríkislögreglustjóra ofviða Halda áfram umfangsmikilli leit að ferðamanni við Háafoss Kallar formann VR „ómerkilegan popúlista“ „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Við þurfum að vera tilbúin að takast á við eldgosavá Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi „Vitum ekkert hvað við eigum von á mörgum“ Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Vaka kaus sér nýja forystu Segir ráðherra fá of lausan taum í nýjum sóttvarnalögum Dyflinarreglugerðin ekki afnumin þótt orðalag breytist Hættusvæði vegna hraunrennslis, almyrkvi og afmæli Sviptur réttindunum á staðnum Tilfærsla Sigríðar Bjarkar tímabundin Alma Möller fagnar nýjum sóttvarnalögum „Líður stundum eins og ég sé með pólitískan eltihrelli“ Grindavík og Hveragerði talin í mestri hættu vegna eldgosa Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur í Dettifossmálinu Ekki hafi verið hægt að sýna fram á meinta nauðgun Forseti klökknaði þegar Þórdís Kolbrún kvaddi Megi búast við útskúfun úr samfélaginu eftir afplánun Orðinn máttvana í útlimum þegar hjálpin barst Sigríður Björk aftur færð til Gagnrýnin komi ekki á óvart en telja sig vera að gera rétt Kosningapallborð fréttastofu: Mun Sjálfstæðisflokkurinn halda velli í Garðabæ? Launamál í verkalýðshreyfingunni og þingmaður hætt kominn á kajak Ingibjörg þarf ekki að víkja í máli Margrétar Foksandur og rykagnir búa í þokunni Var bjargað úr sjónum eftir hálftíma: „Slysin gera ekki boð á undan sér“ Bílvelta á Hringbraut Sjá meira
Seðlabankinn á dagskrá Alþingis en ekki í viðskiptanefnd Þriðja og síðasta umræðan um seðlabankafrumvarpið á að fara fram á Alþingi í dag. Þrátt fyrir það er frumvarpið ekki á dagskrá fundar viðskiptanefndar sem hófst klukkan hálf níu. ,,Þetta mál er ekki á dagskrá viðskiptanefndar," segir Álfheiður Ingadóttir formaður nefndarinnar. Hún útilokar þó ekki að einhver nefndarmanna taki málið upp undir liðnum önnur mál. 24. febrúar 2009 08:48
Vonast til að seðlabankafrumvarp komist á dagskrá í dag Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra sagðist í gærkvöldi vonast til þess að seðlabankafrumvarpið komist á dagskrá Alþingis í dag, eftir að þinghald fór út um þúfur í gær þegar ljóst varð að frumvarpið sæti fast í viðskiptanefnd. 24. febrúar 2009 07:21
Mikil óvissa um seðlabankafrumvarpið Mikil óvissa ríkir um það hvort seðlabankafrumvarp forsætisráðherra fer í þriðju og síðustu umræðu á Alþingi í dag. Málið er komið á dagskrá Alþingis en situr engu að síður fast í viðskiptanefnd. 24. febrúar 2009 12:01
Seðlabankafrumvarpið tekið af dagskrá Guðbjartur Hannesson, forseti Alþingis, tilkynnti í upphafi þingfundar í dag að seðlabankafrumvarpið hafi verið tekið út af dagskrá en upphafleg dagskrá gerði fyrir að málið til umræðu í dag. 24. febrúar 2009 13:32