Innlent

Stefnt að því að hefja aðildarviðræður í júlí

Frá flokksstjórnarfundi Samfylkingarinnar.
Frá flokksstjórnarfundi Samfylkingarinnar. Mynd/Vilhelm Gunnarsson

Ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri grænna mun óska eftir að hefja aðildarviðræður við Evrópusambandið í júlí nái þingsályktunartillaga flokkanna fram að ganga. Þetta kom fram á flokksstjórnarfundi Samfylkingarinnar á Hótel Sögu í dag, samkvæmt heimildum fréttastofu.

Verkefni verða færð til á milli ráðuneyta í nýrri ríkisstjórn flokkanna. Ráðuneytum verður fækkað í tíu og ennfrekar síðar á kjörtímabilinu þegar þau verða níu. Útfærslan liggur ekki fyrir.

Össur Skarphéðinsson verður áfram utanríkisráðherra, samkvæmt heimildum fréttastofu.

Forystumenn Samfylkingar og Vinstri grænna kynna sáttmálann og ráðherralista nýrrar ríkisstjórnar á blaðamannafundi í Norræna húsinu sem ráðgert er að hefjst klukkan 16. Stöð 2, Bylgjan og Vísir munu senda beint út frá fundinum.




Tengdar fréttir

Ný ríkisstjórn kynnt klukkan fjögur - bein útsending

Stefnt er að því að formenn stjórnarflokkanna, þau Jóhanna Sigurðardóttir og Steingrímur J. Sigfússon, kynni stjórnarsáttmála og ráðherralista nýrrar ríkisstjórnar á blaðamannafundi í Norræna húsinu klukkan 16. Stöð 2 mun senda beint út frá þeim fundi, og einnig beint frá Bessastöðum í fréttatímanum klukkan 18:30 þar sem stjórnarskiptin fara fram.

Fyrsta meirihlutastjórn vinstriflokka hér á landi

Ný ríkisstjórn Samfylkingarinnar og Vinstri grænna verður mynduð í dag og verður þetta í fyrsta meirihlutastjórn tveggja vinstri flokka á Íslandi. Ríkisráðsfundir hafa verið boðaðir á Bessastöðum síðdegis þar sem stjórnarskiptin fara fram. Síðasti fundur fráfarandi ríkisstjórnar hefst klukkan 17 og fyrsti fundur nýrrar stjórnar hefst klukkan 18:15.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×