Innlent

Ný ríkisstjórn kynnt klukkan fjögur - bein útsending

Stefnt er að því að formenn stjórnarflokkanna, þau Jóhanna Sigurðardóttir og Steingrímur J. Sigfússon, kynni stjórnarsáttmála og ráðherralista nýrrar ríkisstjórnar á blaðamannafundi í Norræna húsinu klukkan 16.

Stöð 2, Bylgjan og Vísir munu senda beint út frá þeim fundi, og einnig beint frá Bessastöðum í fréttatímanum klukkan 18:30 þar sem stjórnarskiptin fara fram.

Í tilkynningu frá skrifstofu forseta Íslands segir að ríkisráðsfundir verði haldnir á Bessastöðum síðdegis í dag. Fyrri fundurinn hefst klukkan 17 og síðari fundurinn 18:15.








Tengdar fréttir

Ný ríkisstjórn líklega mynduð í dag

Nú stendur yfir flokksráðsfundur Vinstri grænna á Grand Hótel í Reykjavík en fundurinn mun taka afstöðu til þátttöku flokksins í ríkisstjórn með Samfylkingunni. Flokksstjórn Samfylkingarinnar fundar á Hótel Sögu klukkan eitt.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×