Arnaldur heillar Spánverja með „La mujer de verde“. 4. maí 2009 10:17 MYND/Ralph Baumgartner
Skáldsagan Grafarþögn eftir Arnald Indriðason kom út fyrir rúmum mánuði á Spáni undir heitinu La mujer de verde. Þetta er önnur bók Arnaldar sem kemur út þar í landi en áður hefur Mýrin verið gefin út á spænsku. Í tilkynningu frá útgefanda segir að Grafarþögn hafi gengið gríðarlega vel í spænska lesendur og setið allan aprílmánuð í efstu sætum metsölulistanna. Á metsölulistum þriggja stærstu blaðanna í Katalóníu - La Vanguardia, El Periódico og El Mundo: Catalunya - fór bókin beint í fimmta sæti en hækkaði sig viku síðar í fjórða sæti og hefur setið þar síðan. „Sömu sögu er að segja á metsölulista La Razon sem kemur út um allan Spán. Á þeim lista slær Arnaldur við svakalegum metsölubókum eins og Twilight-bókum Stephenie Meyer og Lesaranum eftir Bernhard Schlink með því að sitja fast í fjórða sæti. Raunar virðast vinsældir Arnaldar teygja sig ansi víða á Spáni. Sem dæmi má nefna að í blaðinu Hoy sem kemur út í Extremadura héraðinu vestast á Spáni fór Grafarþögn líka beint í fjórða sæti og þar hefur hún verið síðan," segir einnig. Útgefandi segir að góðan árangur Arnaldar á Spáni megi meðal annars þakka mikilli og jákvæðri umfjöllun, en birst hafa stórar greinar um bókina og höfundinn í blöðum eins og La Vanguardia og El Mundo. „Gagnrýnendur hafa þá tekið bókinni vel; El Periódico segir rannsóknarlögreglumanninn Erlend Sveinsson vera norræna útgáfu af Maigret lögregluforingja, stóískan og angistarfullan: „Ég ríf í mig Grafarþögn eftir Arnald Indriðason, óhugnanlega spennusögu sem ég tel eina af áleitnari og mest grípandi skáldsögum seinni tíma," segir ritdómarinn Ramón de España."
Mest lesið Vann með fimm poppstjörnum á einni viku Lífið Sjóðheitur Patrekur Jaime með stórstjörnuteiti Lífið Fjórar konur ásaka Leto um refsiverða háttsemi í nýrri heimildarmynd Lífið Patrik hættur að gigga: „Mér líður eins og apa í búri“ Tónlist „Hélt ég myndi aldrei upplifa ást sem þessa“ Lífið Gurrý komin aftur á markaðinn Lífið Eftirlætis myndir Laufeyjar: „Mig dreymir um þetta augnablik“ Bíó og sjónvarp Tíu ár frá greiningunni: „Ég var alltaf ákveðin í að sigrast á meininu“ Lífið Þýðandi Ódysseifskviðu segir að Nolan eigi að skammast sín Lífið Japanskir sjóliðar troða upp fyrir utan Hörpu Lífið Fleiri fréttir Fjórar konur ásaka Leto um refsiverða háttsemi í nýrri heimildarmynd Vann með fimm poppstjörnum á einni viku Sjóðheitur Patrekur Jaime með stórstjörnuteiti Tilraunakennd tískusýning í bílakjallara Safna fjármagni með múrmeldýrum á OnlyFans Gurrý komin aftur á markaðinn Förðunardrottning selur á Framnesvegi „Heimurinn er betur staddur með Höllu sem forseta“ Tíu ár frá greiningunni: „Ég var alltaf ákveðin í að sigrast á meininu“ „Hélt ég myndi aldrei upplifa ást sem þessa“ Bogi Ágústsson á fjölunum sem Sigurjón digri Guðný Ljósbrá og Katrín Björk eignuðust dreng Þýðandi Ódysseifskviðu segir að Nolan eigi að skammast sín Carly Simons lærir að lifa með Parkinson Daði og Árný eiga von á sínu þriðja barni Japanskir sjóliðar troða upp fyrir utan Hörpu Edda Falak og Kristján Helgi selja íbúð í 101 Seyfried syrgir Finn sinn Elegans í hæstu hæðum í fimmtugsafmæli ársins Stjörnulífið: „Heppnasta stelpa allra tíma“ Fundu hvor aðra á ný eftir erfiða reynslu Emma Roberts gengin í það heilaga „Maður getur ekki falið sig á sama hátt þegar allt hárið er farið“ Krakkatía vikunnar: Rottur, froða og þyrnihrós Einar Örn og Birna selja einbýlishúsið Ekki ósanngjarnt gagnvart sjálfri sér heldur börnunum Vilja láta svipta ekkju leikarans yfirráðum yfir dánarbúinu Gagnrýni á John Snorra ómálefnaleg og slitin úr öllu samhengi Fréttatía vikunnar: Infantino, hvítt efni og svikahrina Diddy í einangrun eftir slagsmál við samfanga Sjá meira