Unnið að fjórða meirihlutanum í Grindavík - farsakennd bæjarpólitík 6. desember 2009 11:51 Grindavík.
Samfylkingin, Vinstrihreyfingin grænt framboð og Sjálfstæðisflokkurinn í Grindavík hittast í kvöld til þess að semja um nýjan meirihluta í bæjarstjórn eftir að VG sleit samstarfinu á föstudaginn síðasta. Þá sendu þeir út tilkynningu þar sem þeir sögðust ekki geta stutt meirihluta Samfylkingar, Framsóknar og VG vegna ágreinings um bæjarstjóra. VG vildi nýjan bæjarstjóra eftir að Samfylkingarkonan Jóna Kristín Þorvaldsdóttir hætti störfum og fór að vinna sem prestur. Framsóknarmenn vildu aftur á móti ekki nýjan bæjarstjóra en sex mánuðir eru eftir af kjörtímabilinu. „Við munum funda klukkan átta í kvöld," sagði Hörður Guðbrandsson, bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar og forseti bæjarstjórnar. Hann er eini Samfylkingarmaðurinn sem er eftir í bæjarstjórn, en tveir fengu kosningu í síðustu bæjarstjórnarkosningum. Þetta er í þriðja skiptið sem meirihluti springur í Grindavík en bæjarstjórnarmálin þar hafa verið hálf farsakennd á kjörtímabilinu. Fyrst slitnaði upp úr samstarfi Samfylkingarinnar og Sjálfstæðisflokksins þegar í ljós kom að umdeildur ráðningasamningur var gerður við þáverandi bæjarstjóra sem var ráðinn til starfanna. Hann fékk meðal annars greitt út kjörtímabilið þrátt fyrir að hafa verið sagt upp og í ofan á lagi keypti bærinn húseign af honum. Við tók meirihluti Samfylkingarinnar og Framsóknarflokksins. Þá komu upp harðar deilur innan meirihlutans þar sem ráða átti Garðar Pál Vignisson sem skólastjóra í Grindavík og varð ósættið slíkt að Garðar Páll sagði sig úr Samfylkingunni og gekk yfir í VG, sem náðu ekki manni inn í síðustu sveitastjórnakosningum. Á eftir honum fylgdi Björn Haraldsson, sem var kosinn fyrir hönd Frjálslynda flokksins sem þurrkaði þar með út. VG var óvænt kominn í oddastöðu í bæjarstjórn. Þá varð staðan enn sérkennilegri því skyndilega var meirihluti Samfylkingar og Framsóknar orðinn minnihluti. Ný meirihluti var svo myndaður, Framsókn og Samfylkingin héldu meirihluta sem minnihlutastjórn. VG varði svo bæjarstjórnina frá falli - þangað til á föstudaginn þegar óásættanlegur bæjarstjórarígur myndaðist á milli Framsóknar og VG. Vildu forsvarmenn VG að forseti bæjarstjórnar, Hörður Guðbrandsson, tæki við sem bæjarstjóri. Framsókn vildi þrauka út kjörtímabilið án bæjarstjóra, enda einn þegar á launum. Þess má geta að Jóna Kristín hafnaði biðlaunum. Nú er svo komið að fjórði meirihlutinn verði myndaður í Grindavík gangi allt að óskum í kvöld. Ekki náðist í Garðar Pál við vinnslu fréttarinnar.
Mest lesið „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Innlent Trump vill ekki flýta sér Erlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Innlent „Ekki í lífshættu“ Innlent Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Innlent Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Innlent „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ Innlent Fleiri fréttir „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Sjá meira