Adrenalínflóð á kvikmyndahátíð Íslenska alpaklúbbsins Atli Steinn Guðmundsson skrifar 19. maí 2009 09:03 MYND/Pascal Lebeau
Hin árlega Banff-fjallamyndahátíð fer fram hér á landi í kvöld og annað kvöld. Það er Íslenski alpaklúbburinn sem hefur veg og vanda af hátíðinni en hún hefur verið haldin á Íslandi nokkur undanfarin ár. Sýnt verður úrval kvikmynda þar sem áherslan er á ævintýramennsku fólks sem leggur stund á jaðaríþróttir en það sem ber hæst af slíkum íþróttum á Banff-sýningunni er klifur, svifvængjaflug, snjóbrettaiðkun, fjallaskíði, fjallahjól, BASE-stökk og ýmislegt fleira sem kemur adrenalíni og blóði rækilega á hreyfingu í iðkendum jafnt sem áhorfendum. Nafn hátíðarinnar er dregið af þorpinu Banff í samnefndum þjóðgarði í Kanada sem er vinsæll dvalarstaður jaðaríþróttamanna og annarra sem láta sér hlaupabrettið í ræktinni ekki nægja til að kynnast hinum æðri nautnum lífsins; spennu og á stundum lífshættulegu sprikli við aðstæður sem nægja til að vekja gæsahúð hjá þeim sem ekki eru innvígðir. MYND/Eder Rainer Virtasta hátíðin í þessum geira „Þetta er virtasta kvikmyndahátíðin í þessum geira og frábært að geta boðið upp á þessar sýningar hér á landi. Það er fjöldinn allur af myndum sem keppa á hverju ári úti í Banff og rjóminn af þeim er síðan sendur á flakk um heiminn," segir Björgvin Hilmarsson, stjórnarmaður í Íslenska alpaklúbbnum, og bætir því við að enginn annar viðburður sameini jafnmargt áhugafólk um jaðaríþróttir hér á landi. Björgvin hefur sjálfur lagt stund á fjallamennsku, ís- og klettaklifur í mörg ár og sammælist félögum sínum í klúbbnum um það að fátt hafi veitt honum meiri ánægju og tilfinningu fyrir lífinu sjálfu. Banff-hátíðin, sem í ár er haldin í samvinnu við 66° Norður, er að sögn Björgvins orðin ómissandi viðburður fyrir stóran hóp fólks sem bíður hennar með óþreyju ár hvert. „Þarna kemur saman kjarninn sem stundar þessi jaðarsport á Íslandi sem og aðrir sem eru einfaldlega að sækjast eftir að sjá skemmtilegar myndir sem sýna ævintýri fólks sem kann að njóta lífsins til hins ýtrasta. Náttúran leikur alltaf stórt hlutverk og eiga þessar myndir það sammerkt að fjalla á einhvern hátt um samspil fólks og náttúru." MYND/Wills Young Ríflega 300 myndir á ári Ríflega 300 kvikmyndir eru sendar á Banff-hátíðina ár hvert og spannar efni þeirra allt frá háfjallaklifri og skíðamennsku til snæhlébarða og sherpa. Þátttakendur eru frá framhaldsskólanemum til virtra atvinnumanna í kvikmyndagerð frá National Geographic og BBC. Það má því ljóst vera að enginn ætti að sóa tíma sínum á sýningunni sem haldin er í sal Ferðafélags Íslands, Mörkinni 6, kl. 20 í kvöld og annað kvöld. Dagskrá kvöldanna má finna hér.
Mest lesið Mig langaði til að öskra: „Ég skal segja allt af létta!“ Gagnrýni Harbour rýfur þögnina Bíó og sjónvarp Hvað veistu um… árið 2010? Lífið „Það má herma“ Tíska og hönnun Swae Lee heldur tónleika á Íslandi Tónlist Hefur þegar fengið starfstilboð Lífið Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Lífið Guðrún Ýr og Birnir í eina sæng Tónlist „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Lífið Skandinavíska merkið Ninepine komið til Lín Design Lífið samstarf Fleiri fréttir Hefur þegar fengið starfstilboð Hvað veistu um… árið 2010? Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Sjö heitustu brúðkaupstrendin í sumar „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Rassaumhirða karla í sókn Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn í Reykjavík Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Þegar tónlistin heltók lögmanninn Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Anthony Head er látinn Emilíana Torrini selur einbýlishús á 250 milljónir Sjá meira