Erlent

Geimrusl skall á húsþaki í Hull

Atli Steinn Guðmundsson skrifar
Gervitungl.
Gervitungl.

Tveggja kílógramma þungt geimrusl skall á húsþaki ellilífeyrisþega á sjötugsaldri í bresku borginni Hull í síðustu viku. Í fyrstu var talið að hluturinn, sem er úr dökkgráum málmi, hefði brotnað af flugvél en húsið er beint undir flugleið. Eftir rannsókn kvað konunglegi breski flugherinn hins vegar upp þann úrskurð að um geimrusl væri að ræða. Þak hússins skemmdist lítillega og var hluturinn svo heitur að maður sem fór upp á þak til að ná í hann varð að nota bökunarhanska. Vitað er að ógrynni brota og hluta úr rúmlega 5.000 misgömlum gervitunglum sveima á sporbaugi umhverfis jörðina.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×