Framkvæmdastjóri Samfylkingarinnar krefst breytinga 16. janúar 2009 21:37 Skúli Helgason, framkvæmdastjóri Samfylkingarinnar.
Ríkisstjórnin þarf að gera nýjan sáttmála við þjóðina, að mati Skúla Helgasonar framkvæmdastjóra Samfylkingarinnar. Hann vill breytingar á ráðherraskipan ríkisstjórnarinnar og uppstokkun innan Seðlabankans og Fjármálaeftirlitsins. Skúli segir að ríkisstjórnin þurfi í fyrsta lagi að sýna fram á með áþreifanlegum hætti að hún skilji óánægju þjóðar sinnar, taki mark á henni og sé reiðubúin að bregðast við með breytingum sem um munar. Breytingar á ríkisstjórn, FME og Seðlabanka ,,Þær þurfa að fela í sér uppstokkun innan Seðlabanka Íslands og Fjármálaeftirlitsins, breytingar á skipan ríkisstjórnarinnar, verkaskiptingu innan hennar, en líka siðbót, sem felur í sér meira gagnsæi og virðingu í verki fyrir pólitísku siðferði," segir Skúli í grein á vefsíðu Samfylkingarinnar. Trúnaður við þjóðina hafi beðið hnekki og það útheimti verulegt átak að endurvinna traust þjóðarinnar. Siðareglur og endurskoðuð lög um ráðherraábyrgð Skúli segir mikilvægt að samþykktar verði siðareglur sem meðal annars komi í veg fyrir óeðlileg hagsmunatengsl þingmanna og annarra ráðamanna við hagsmunaaðila. Þá telur hann þörf á að endurskoða lög um ráðherraábyrgð og þrígreining ríkisvaldsins verði styrkt. Aðildarumsókn og skýr atvinnustefna ,,Þá þarf að gefa þjóðinni skýr fyrirheit um framtíðina, ákvörðun um aðildarumsókn að Evrópusambandinu skiptir þar verulegu máli en jafnframt þarf að móta nýja atvinnustefnu, hefja markvissa gagnsókn gegn atvinnuleysinu, forgangsraða í þágu velferðarþjónustu og almannahagsmuna í ríkisfjármálum og leggja fram raunhæfar tillögur um sparnað í ríkiskerfinu sem fékk að blása út í góðærinu," segir Skúli. Grein Skúla er hægt að lesa hér.
Mest lesið Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Innlent Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Erlent Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Innlent Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Innlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Fleiri fréttir Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sjá meira