Athvarf fyrir sextíu konur 5. desember 2009 04:00 Mæðrahúsið. Þar geta allt að 60 konur verið á sama tíma en húsið er hugsað sem aðstaða fyrir konur sem bíða fæðingar en þær þurftu áður að hafast við úti.
Hjálparstarf Mæðrahús sem reist var að frumkvæði Íslendinga var formlega opnað í bænum Engela í Namibíu í vikunni. Forsetafrú Namibíu, frú Penehupifo Pohamba, opnaði húsið að viðstöddu fjölmenni, en hún var verndari söfnunar til byggingar hússins. Saga hússins á rætur sínar að rekja til þess er Vilhjálmur Wiium, umdæmisstjóri Þróunarsamvinnustofnunar Íslands í Namibíu, ók fram á konur sem biðu fæðingar á spítalanum í Engela í Ohangwena-sýslu nyrst í Namibíu. Spítalinn er sá eini í sýslunni en í henni búa 230 þúsund manns og þangað koma mæður hvaðanæva að. Einkum sækjast konur sem óttast vandamál við fæðingu eftir að fæða á spítalanum. Ekkert pláss var hins vegar til þess að taka konurnar inn fyrr en hríðir hófust. Höfðust þungaðar konur því við undir tveimur trjám í nágrenni spítalans, elduðu sér mat á hlóðum og sváfu úti, oft í talsverðum kulda. Við svo búið mátti ekki una og eftir umræður og bollaleggingar var hafist handa við að safna fé til húsbyggingar. Margir lögðu hönd á plóginn við að reisa húsið, fyrirtæki og stofnanir á svæðinu til að mynda. Íslendingar lögðu til um þriðjung af heildarkostnaði, Reykjanesbær stóð fyrir fjáröflun á Ljósanótt árið 2007, en þar söfnuðust 300.000 krónur sem runnu í byggingu mæðrahússins. Þróunarsamvinnustofnun Íslands lagði einnig til fé. Talsverðar tafir urðu á byggingu hússins, meðal annars vegna flóða. En það reis að lokum og er mikil ánægja með það í héraðinu samkvæmt upplýsingum Þróunarsamvinnustofnunar Íslands. Í húsinu eru átta gististofur sem geta hýsta sextíu konur samtímis. Þar er eldunaraðstaða sem konurnar geta nýtt sér og einnig er góð hreinlætisaðstaða með sturtum. Í húsinu er aðstaða til að veita mæðrum ráðgjöf um fæðingar og umönnun barna. sigridur@frettabladid.is Lóðargefandinn Háöldruð kona frá svæðinu gaf lóðina sem Mæðraheimilið stendur á. Söfnunarfé afhent Íslendingar borguðu þriðjunginn af húsinu. Frú Pohamb Forsetafrú landsins þakkaði Íslendingum fyrir framlag sitt til hússins í ræðu er húsið var vígt.
Mest lesið Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag Innlent „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Innlent Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Innlent Stórfelld líkamsárás og aðstoð mistúlkuð sem innbrot Innlent „Við verðum að fá fólk heim aftur“ Innlent Merz segir Írani spila með Bandaríkjastjórn Erlent Hvenær slítur maður viðræðum og hvenær slítur maður þeim ekki? Innlent Inga kemur Ingó til varnar Innlent Konungshjónin komin vestur um haf og Karl ávarpar þingið í dag Erlent Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Húsnæðismál í aðdraganda kosninga Sumarbúðir fatlaðra barna í húsi sem sé úr sér gengið Vongóður um að fundur með Apple skili árangri Hvenær slítur maður viðræðum og hvenær slítur maður þeim ekki? Stórfelld líkamsárás og aðstoð mistúlkuð sem innbrot „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag „Við verðum að fá fólk heim aftur“ „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegu tímabili að ljúka Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Sjá meira