Innlent

N1 bíður átekta - Olís lækkar

Breki Logason skrifar
Hermann Guðmundsson forstjóri N1 segist bíða eftir svari frá fjármálaráðuneytinu varðandi vörugjaldshækkunina en Skeljungur tilkynnti um 12,5 króna lækkun á eldsneyti fyrr í dag. Framkvæmdarstjóri vörustýringarsviðs hjá Olís segir að bensín hjá þeim muni lækka um sömu krónutölu í dag.

„Við munum setja okkur í samband við þá [Fjármálaráðuneytið] strax eftir hádegið og bregðumst við í kjölfarið," segir Hermann sem hefur beðið eftir svari frá ráðuneytinu frá því á föstudag.

Í tilkynningu frá Skeljungi segir að félagið hafi fengið staðfestingu frá tollayfirvöldum að nýtilkomnar breytingar á bensíni muni aðeins eiga við um bensínbirgðir Skeljungs sem ekki voru komnar til landsins þann 29.maí síðastliðinn.

Samúel Guðmundsson framkvæmdarstjóri vörustýringarsviðs hjá Olís segir að félagið hafi þá stefnu að bjóða viðskiptavinum sínum upp á samkeppnishæft verð og von sé á lækkun síðar í dag um 12,5 krónur.

Samúel segir það koma Olís á óvart að ekki hafi átt að greiða vörugjöld af þeim birgðum sem félagið átti 28.maí líkt og gert hefur verið hingað til.

„Við fengum sendan tölvupóst frá fjármálaráðuneytinu að kvöldi 28.maí þar sem ekki kom fram að það ætti að gera þetta með öðrum hætti en áður hefur verið gert," segir Samúel.

Hann segir þó ljóst að hækkunar sé þörf enda sjái menn að heimsmarkaðsverð á bensíni hafi farið hækkandi og krónan veikst. Hann segist ekki geta svarað því til hvenær Olís muni hækka verð hjá sér aftur.




Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×