Ætlar að syngja Eyjamenn edrú 25. apríl 2009 06:00 Búist er við metþátttöku þetta árið en aldrei hafa ferðir til Eyja á þeim tíma verið bókaðar sem nú. „
Þetta er gamall draumur. Og mikill heiður. Ég er þakklátur fyrir þetta tækifæri og mun leggja mig allan fram um að skemmta gestum,“ segir Geir Ólafsson söngvari sem hefur verið ráðinn til að skemmta á Þjóðhátíð. Undirbúningur Þjóðhátíðar í Eyjum stendur nú yfir þó enn séu þrír mánuðir í verslunarmannahelgi. Eyjamenn búast við metþátttöku. Og hafa það fyrir sér í því að aldrei hafa fleiri skráð sig með Herjólfi og með flugi til Eyja dagana sem hátíðin stendur yfir. Að sögn Birgis Guðjónssonar, formanns Þjóðhátíðarnefndar, mættu ríflega tíu þúsund manns í fyrra. Ekki liggur fyrir hvert metið er en það er í kringum tíu til tólf þúsund manns. Menn eru nú að stækka tjaldsvæðin í Herjólfsdal því það stefnir í metþátttöku. Geir Ólafs segir aðspurður ekki búið að ganga frá kaupi og kjörum en lætur það liggja á milli hluta. „Þeir höfðu samband. Ég hafði boðið fram krafta mína áður og þeir telja minn tíma kominn núna. Ég er þakklátur fyrir það. Ég verð með undirleikinn á diski og er að bæta við dagskrá mína. Nei, ég er ekki í tónlist peninganna vegna heldur fyrst og fremst til að gleðja aðra og auðga styrk hjartans,“ segir Geir. Söngvarinn er bláedrú og aðspurður hvernig honum lítist á að vera innan um þúsundir manna sem spara hvergi söngvatnið við þetta tækifæri segist hann alvanur því að vera innan um drukkið fólk. Og kemur svo á óvart með djarfri yfirlýsingu: „Svo geri ég liðið edrú með góðum söng.“ Þegar þessi orð Geirs eru borin undir formann Þjóðhátíðarnefndar setur hann nánast hljóðan. „Já, þú meinar það? Þetta kemur á óvart. Margir hafa reynt þetta en ekki tekist. En ég veit ekki hvað hann er magnaður maðurinn. Söngvatnið fræga flýtur og það er ekki leiðinlegt. Og erfitt að breyta 130 ára gamalli hefð. Ég held að Geir sé eitthvað að skjóta út í loftið,“ segir Birgir. Auk Geirs hefur verið gengið frá því að Sálin hans Jóns míns og Skítamórall koma fram á Þjóðhátíð í Eyjum. -jbg
Mest lesið Sunneva Einars áfram langtekjuhæsti áhrifavaldurinn Lífið Tekjuhæstu listamennirnir árið 2025 Lífið Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Lífið Nicole er fyrir norðan Lífið Hemma Gunn-stytta og heitur pottur í 192 milljóna króna raðhúsi Lífið Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Lífið Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Lífið „Ógleymanlegt söngævintýri“ með Nicole Kidman Lífið Sannkallað stjörnubrúðkaup Katrínar Tönju og Brooks Lífið Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Lífið Fleiri fréttir Sannkallað stjörnubrúðkaup Katrínar Tönju og Brooks Tekjuhæstu listamennirnir árið 2025 Sunneva Einars áfram langtekjuhæsti áhrifavaldurinn „Ógleymanlegt söngævintýri“ með Nicole Kidman Prjóna á klúbbnum án þess að prjóna yfir sig Hemma Gunn-stytta og heitur pottur í 192 milljóna króna raðhúsi Verjendur Davis segja ekkert að marka skjólstæðing sinn Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Sjá meira