Innlent

Gylfi: Þjóðverjar þrýstu ekki á okkur

Magnús Már Guðmundsson skrifar
Gylfi Magnússon, viðskiptaráðherra.
Gylfi Magnússon, viðskiptaráðherra.
Viðskiptaráðherra sagði í umræðum á Alþingi í dag að það væri rangt að Þjóðverjar hefðu hótað Íslendingum með einhverjum hætti. Verið væri að gera Þjóðverjum upp ansi miklar sakir.

Fréttastofa greindi nýverið frá því að í tölvuskeyti til skilanefndar Kaupþings væri ýjað að því ef að þýskir Edge innistæðueigendur fengu ekki innistæður sínar greiddar myndu þýsk stjórnvöld beita sér í viðræðum Íslendinga við Evrópusambandið og Alþjóðagjaldeyrissjóðinn.

Ragnheiður Elín Árnadóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, vildi vita hvort að Gylfi Magnússon, viðskiptaráðherra, ætlaði að beita sér fyrir því að umrætt tölvuskeyti til skilanefndar Kaupþings verði birt opinberlega. Hún spurði jafnframt hvort að Gylfi ætlaði að skýla sér á bak við skilanefndina.

Gylfi sagði þetta fráleitt og að unnið væri að því í viðskiptaráðuneytinu að tölvupóstur til skilanefndar Kaupþings verði birtur opinberlega.






Tengdar fréttir

Ámælisvert að viðskiptanefnd hafi ekki verið gerð grein fyrir hótunarbréfinu

Formaður viðskiptanefndar segir það ámælisvert að nefndinni hafi ekki verið gerð grein fyrir hótunarbréfi þýskra stjórnvalda áður en hún samþykkti lagabreytingu sem heimilar að þýskum Edge innistæðueigendum verði greitt fyrr en ella. Í bréfinu var ýjað að því að ef þjóðverjar fengu ekki greitt hið snarasta myndu þýsk stjórnvöld beita sér í viðræðum íslendinga við evrópusambandið og alþjóða gjaldeyrissjóðinn.

Hefði viljað sjá hótunarbréf þýskra stjórnvalda

Lilja Mósesdóttir þingmaður vinstri grænna tekur undir með Guðlaugi Þór Þórðarsyni sem kvartaði undan því í fréttum Stöðvar 2 um helgina að hótunarbréf þýskra stjórnvalda vegna Edge reikninganna hefði ekki verið lagt fram í viðskiptanefnd.

Hefur ekki séð hótunarbréfið

Viðskiptanefnd situr nú á fundi, en Álfheiður Ingadóttir, formaður nefndarinnar, hafði óskað eftir afriti af bréfi þýskra stjórnvalda til skilanefndar Kaupþings. Í bréfinu var ýjað að því að ef þýskir Edge innistæðueigendur fengju ekki greitt hið snarasta myndu þýsk stjórnvöld beita sér í viðræðum Íslendinga við Evrópusambandið og Alþjóða gjaldeyrissjóðinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×