Laxness loks út á arabísku 4. júní 2009 08:00 halldór laxness Bækur hans hafa verið þýddar á samtals 43 tungumál en fyrst nú kemur verk eftir hann út á arabísku. „
Það var mjög sérstakt að skipta við hinn arabíska heim og þeir voru með ýmsar tiktúrur í sambandi við innihald bókanna sem þeir gefa út,“ segir Hólmfríður Matthíasdóttir hjá réttindastofu Forlagsins. Nýverið var gengið frá því að Brekkukotsannáll eftir Halldór Laxness kæmi út á arabísku en það eru Arab Scientific Publishers sem munu gefa bókina út og stendur til að dreifa henni um allan hinn arabíska heim. Er þetta í fyrsta skipti sem bók eftir Laxness kemur út á arabísku. Samkeppniseftirlitið reisti fyrir ári skorður við því að Forlagið fengi að annast útgáfumál nóbelsskáldsins. Nýverið gekk sú ákvörðun til baka. Hólmfríður segir að nú haldi Forlagsmenn sínu striki og eftir að Forlagið fékk höfundarverk Halldórs Laxness aftur í hendurnar hefur verið unnið að því hörðum höndum að auka hróður hans. En hvaða tiktúrur eru þetta sem Hólmfríður vísar til? „Jahhh, hvernig á ég að orða það. Varla að maður geti sagt frá því. En það er allskonar. Bækur mega ekki fjalla um eitthvað sem er trúarlegs eðlis, það má ekki vera mikið kynlíf í þeim og einhverra hluta vegna mega þær ekki vera of langar.“ Hólmfríður tekur fram að þessar kröfur eða skilyrði hafi komið fram í bréfaskriftum við umboðsaðila arabísku útgefendanna. „Svo hitti ég forleggjarann þeirra í London og hann var hins vegar ekki með neinar slíkar kröfur uppi heldur fannst þetta allt stórkostlegt og vonast til að gefa mikið út af íslenskum bókum í framtíðinni.“ hólmfríður matthíasdóttir Bækur sem koma út í hinum arabíska heimi mega ekki innihalda of mikið um trúmál, kynlíf og þær mega ekki vera of langar. Valið stóð á milli Sjálfstæðs fólks og Brekkukotsannáls. Arabísku útgefendurnir töldu betra að byrja á Brekkukotsannáli meðal annars vegna þess að þeir telja að ekki taki eins mikinn tíma að ganga frá þýðingu þeirrar bókar. Hólmfríður segir að þótt aðeins sé fyrirliggjandi samningur um útgáfu Brekkukotsannáls hafi komið fram fullur vilji til að halda áfram. Fyrsta prentun verður ekki í mjög stóru upplagi, eða rúmlega tvö þúsund eintökum, en gangi vel verður prentað meira. Arab Scientific Publishers eru að sögn Hólmfríðar með afar gott dreifikerfi. Þó fleiri íslenskir höfundar séu til skoðunar hjá arabísku útgefendunum ákváðu þeir að byrja á garðinum þar sem hann er hæstur. Eða á verkum Laxness. Varðandi hina efnislegu átakapunkta segist Hólmfríður hafa litlar sem engar áhyggjur af því. Og alls ekki í tilfelli Laxness. „Ég er þeirrar skoðunar að Laxness eigi erindi til allra. Og er viss um, miðað við það sem ég hef lesið af arabískum bókmenntum, að þeir hljóti að vera hrifnir af honum. Þeirra sagnaheimur er ríkur og flókinn. Laxness skrifar um mannlegt eðli, samskipti og er djúpur. Það hlýtur að höfða til þeirra. Ég hef ekki trú á öðru,“ segir Hólmfríður Matthíasdóttir.jakob@frettabladid.is
Mest lesið Nicole er fyrir norðan Lífið Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Lífið Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Lífið Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Lífið Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Lífið Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Lífið Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Bestu hlutverk Hayden Panettiere Bíó og sjónvarp Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Fleiri fréttir Verjendur Davis segja ekkert að marka skjólstæðing sinn Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Sjá meira