Fiðringur til fortíðar í kvöld 7. maí 2009 07:00 dead sea apple Hljómsveitin Dead Sea Apple heldur sína fyrstu tónleika í langan tíma í kvöld.fréttablaðið/valli
Rokksveitin Dead Sea Apple heldur sína fyrstu tónleika í langan tíma á Sódómu Reykjavík í kvöld. „Þetta er nettur fiðringur til fortíðar. Við höfum ekkert spilað í nokkur ár og það var komin smá pressa á okkur að koma fram,“ segir trommarinn Hannes Friðbjarnarson, sem er einnig meðlimur í Buffi. Sveitin hefur einnig sent frá sér nýtt lag sem nefnist I Want You Back sem sýnir að hún hefur engu gleymt. Lagið var hljóðritað í tilefni þess að fimmtán ár eru liðin síðan hún gaf út sitt fyrsta lag á safnplötunni Ýkt böst. Dead Sea Apple var stofnuð í Kópavogi um miðjan síðasta áratug og gaf í framhaldinu út tvær plötur. Á þessum áratug hefur hún gefið út þrjú lög og haldið stöku tónleika. „Við erum allir búnir að þekkjast síðan við vorum tólf ára. Við vorum allir í sama skólanum í vesturbæ Kópavogs og höfum fylgst að síðan þá,“ segir Hannes. Hljómsveitin var iðin við kolann á sínum tíma og reyndi meira að segja að slá í gegn í Bandaríkjunum. „Við vorum spilandi á þessum gömlu klúbbum eins og Tveir vinir, Rósenbergkjallara og Púlsinum. Síðan reyndum við „meik“-drauminn eins og hinir. Við fórum tvisvar til New York til að spila og leika okkur. Þetta var fyrir tíma Airwaves, netsins, gsm-síma og Loftbrúarinnar. Þetta var bara Visakort og málið dautt,“ segir Hannes og hlær. Sódóma verður opnuð klukkan 21 í kvöld og stígur Dead Sea Apple á svið klukkutíma síðar. Miðaverð er 1.000 krónur. „Þetta er átaksmúsík. Þetta verður þungt og skemmtilegt,“ segir Hannes og lofar hörku tónleikum. freyr@frettabladid.is
Mest lesið Mig langaði til að öskra: „Ég skal segja allt af létta!“ Gagnrýni Harbour rýfur þögnina Bíó og sjónvarp Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Lífið Hefur þegar fengið starfstilboð Lífið Hvað veistu um… árið 2010? Lífið „Það má herma“ Tíska og hönnun Swae Lee heldur tónleika á Íslandi Tónlist Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Lífið Guðrún Ýr og Birnir í eina sæng Tónlist „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Lífið Fleiri fréttir Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Hefur þegar fengið starfstilboð Hvað veistu um… árið 2010? Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Sjö heitustu brúðkaupstrendin í sumar „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Rassaumhirða karla í sókn Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn í Reykjavík Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Þegar tónlistin heltók lögmanninn Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Anthony Head er látinn Sjá meira