Innstæður enn að fullu tryggðar þrátt fyrir nýtt frumvarp 3. desember 2009 15:52 MYND/365
Viðskiptaráðherra hefur lagt fram á Alþingi frumvarp um innstæðutryggingar og tryggingakerfi fyrir fjárfesta. Þar er gert ráð fyrir því að hámark innlána í íslenskum bönkum sem tryggt er nemi 50 þúsund evrum eða rúmum níu milljónum króna á núverandi gengi, en til þessa hefur tryggingin numið 20.887 evrum. Markmið laganna er að veita eigendum innstæðna í innlánsstofnunum og viðskiptavinum fyrirtækja í verðbréfaþjónustu lágmarksvernd gegn greiðsluerfiðleikum viðkomandi fyrirtækis. Í frumvarpinu er miðað við að lögin taki gildi 1. janúar á næsta ári. Yfirlýsingar forsætisráðherra og fleiri ráðherra um að allar innstæður í íslenskum bönkum séu að fullu tryggðar eru þó enn í fullu gildi og verða það áfram þó frumvarpið verði að lögum. Hrannar B. Arnarsson, aðstoðarmaður Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra segir að yfirlýsing núverandi ríkisstjórnar um að allar innstæður verði tryggðar að fullu sé enn í gildi og verði það áfram. Geir Haarde þáverandi forsætisráðherra lýsti þessu fyrst yfir í miðju hruni og síðan hefur hún verið ítrekuð af síðari ríkisstjórnum. „Þær yfirlýsingar standa á meðan annað kemur ekki fram og það eru engin tímamörk í því sambandi," segir Hrannar. Hann segir að í frumvarpinu sé aðeins verið að hækka trygginguna eins og hún kemur fyrir í lögunum um tryggingasjóðinn. „Það haggar samt ekkert yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar um að tryggja allar innstæður. Það þarf sérstaka yfirlýsingu til þess," segir Hrannar. Frumvarpið má kynna sér hér.
Mest lesið Lokuðu flugbraut vegna dróna Innlent Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais Innlent „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Innlent Innbrot í kirkju á höfuðborgarsvæðinu Innlent „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Innlent Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Innlent Sektuðu í grennd við Símamótið Innlent Minnst 27 létust þegar eldur kviknaði á bar í Taílandi Erlent „Við erum að svara kalli tímans“ Innlent Níu ára stúlka meðal þeirra sem fórust og árásir enn nær daglegt brauð Erlent Fleiri fréttir Innbrot í kirkju á höfuðborgarsvæðinu Lokuðu flugbraut vegna dróna Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Sektuðu í grennd við Símamótið „Við erum að svara kalli tímans“ Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Á fimmta tug barna vilja sækja skóla í Grindavík „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Hvalur skaut up kollinum í Hólmavík Mælirinn segir 33 gráður „Af og frá“ að Ísland framselji löggjafarvaldið með inngöngu Atvinnulausum í byggingariðnaði fjölgar gríðarlega Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Brotist inn og peningaskápur tekinn Þrír gistu í fangageymslu og töluvert um fölsuð skilríki Hitabylgjur, fullveldi og Megas Þrír handteknir grunaðir um líkamsárás Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Túlka verði niðurstöðurnar af varfærni Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Sjá meira