Innlent

Fum og hálfkák ástæðan fyrir beitingu hryðjuverkalaganna

Guðni Th. Jóhannesson er að fara gefa út bók um efnahagshrunið á fimmtudaginn.
Guðni Th. Jóhannesson er að fara gefa út bók um efnahagshrunið á fimmtudaginn.

Tortryggni og ráðaleysi í samskiptum við Breta varð til þess að hryðjuverkalögum var beitt að sögn Guðna Th. Jóhannessonar, sagnfræðings sem er að gefa út nýja bók um efnahagshrunið á Íslandi.

Í viðtali við Kastljós í kvöld sagði hann að margvísislegar ástæður væru fyrir því að Bretar hefðu að lokum beitt Landsbankann hryðjuverkalögum en það var bylmingshögg á efnahag Íslands. Ráðamenn hér á landi voru í mikilli nauðavörn þegar Bretar frystu eignir Landsbankans með þessum hætti síðasta haust.

„Manni sýnist að Bretar hafi óttast að íslensk stjórnvöld ætluðu að loka sig af og láta erlendar skuldi niður falla," sagði Guðni um ákvörðun Bretanna en hann segir að það hafi ekki verið viðtalið við Davíð Oddsson, þáverandi Seðlabankastjóra, né hafi verið um að kenna samtali Árna M. Mathiesens, þáverandi fjármálaráðherra við Alistair Darling, fjármálaráðherra Breta.

Aftur á móti hafi verið mikið hik á hérlendum stjórnvöldum og viðbrögð þeirra bentu oft til þess að þeir væru ekki vissir hvort ríkið hygðist ábyrgjast innistæður erlendra kröfuhafa, því hafi Bretar beitt þessu harkalega úrræði að mati Guðna.

Þá kom fram í fréttum RÚV um málið að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, þáverandi formaður Samfylkingarinnar, hefði sent Geir H. Haarde tölvupóst vegna viðtals Kastljóss við Davíð Oddsson.

Í póstinu á hún að hafa hótað honum slitum á ríkisstjórn ef Davíð yrði áfram Seðlabankastjóri.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×