Ögmundur: Var vísað á dyr 6. október 2009 06:30 Ögmundur Jónasson þingflokksformaður VG alþingismaður Alþingi stjórnmál Vinstri grænir
Óeiningin innan Vinstri grænna varð til þess í gær að hvorki Ögmundur Jónasson né Guðfríður Lilja Grétarsdóttir vildu flytja ræðu við umræður um stefnuræðu forsætisráðherra, eins og mælst hafði verið til við þau. „Mér finnst ég ekki vera heppilegur kandídat að tala fyrir hönd ríkisstjórnar sem nýverið hefur vísað mér á dyr," segir Ögmundur. „En ég er eindreginn stuðningsmaður ríkisstjórnarinnar þótt ég hafi ekki beinlínis geð í mér þessa stundina til að gerast helstur málsvari hennar." Hann var ekki viðstaddur stefnuræðuna og umræður um hana í gær vegna veikinda. Þá var þingflokksfundi sem fram átti að fara í gær frestað. Sú ástæða er gefin upp fyrir því að of margir hafi ekki getað komist á fundinn, en heimildir herma að innan flokksins hafi einfaldlega verið talið tilgangslítið að ræða þennan ágreining án flokksformannsins. Hann snýr aftur af fundi Alþjóðagjaldeyrissjóðsins í Tyrklandi á miðvikudag. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins gramdist efasemdarmönnum um Icesave-samninginn innan VG mjög þegar Steingrímur J. Sigfússon sagðist í fjölmiðlum daginn eftir kvöldfund þingflokksins á miðvikudaginn var hafa fullt umboð til að leiða Icesave-málið til lykta. Þeir töldu sig ekki hafa veitt honum óskorað umboð til að klára málið, heldur þyrfti það alltaf að koma aftur til kasta þingflokksins. Þetta varð til þess að þeir álitu að samkomulag um að ræða ekki ágreininginn í flokknum opinberlega væri fyrir bí. Í kjölfarið talaði Guðfríður, nánasti samherji Ögmundar, mjög opinskátt í Sjónvarpinu um brotthvarf Ögmundar úr ríkisstjórn. Ummæli Guðfríðar, sem sakaði ríkisstjórnina meðal annars um ólýðræðisleg vinnubrögð, hafa valdið uppnámi og sagði meðal annars í fréttum Stöðvar 2 í gær að ekki væri útilokað að andófsarmurinn, sem í eru, auk Ögmundar og Guðfríðar, Atli Gíslason, Ásmundur Einar Daðason og Lilja Mósesdóttir, klyfi sig úr flokknum. Ólíklegt er þó að til úrsagna úr þingflokknum komi, að sögn heimildarmanna blaðsins. Allir þingmenn og áhrifamenn í Vinstri grænum séu einhuga um það að halda lífi í ríkisstjórninni. Þar innanbúðar geti menn ekki hugsað sér að Sjálfstæðisflokkurinn komist aftur til valda, eins og líklegt er fari þessi ríkisstjórn frá. Í samtali við Fréttablaðið í gærkvöldi sagðist Steingrímur ekki óttast klofning í flokknum. Hann líti svo á að hann hafi óskorað umboð þingflokksins til að láta reyna á hvort hægt verði að ná niðurstöðu í Icesave-málinu, sem síðar yrði kynnt flokksmönnum og öðrum.
Mest lesið Stefnir í fámennari Þjóðhátíð: „Við tökum þetta á langhlaupinu“ Innlent Notaði dulnefni og sveik út vörur fyrir tugi milljóna Innlent Mál Péturs slökkviliðsstjóra komið á borð lögreglu Innlent Gefa upp dánarorsökina vegna „ónákvæmra og rangra frétta“ af andlátinu Erlent Erfiðara og erfiðara að lifa mannsæmandi lífi á Íslandi Innlent Fór af hjólinu skömmu áður en það brann til kaldra kola á þjóðveginum Innlent Ógnvænleg hegðun daglegt brauð: „Það er orðin raunin í þessum bransa“ Innlent „Pólitísk ákvörðun“ hvort hraðinn verði 90 eða 110 Innlent Formaður Brunavarna Árnessýslu: Málið litið mjög alvarlegum augum Innlent Testósterónmagn kannað hjá öllum hermönnum 30 ára og eldri Erlent Fleiri fréttir Áfram Ísland með opinn fund á Skaganum Lýsa eftir Sæbjörgu Umferð beint annað vegna áreksturs undir Ingólfsfjalli „Þetta voru algjörlega mannleg mistök“ Endurskoða sparkvöll við Landakot Notaði dulnefni og sveik út vörur fyrir tugi milljóna „Við erum fyrst og fremst að varða leiðina heim fyrir Grindvíkinga“ Kalla inn próteinpopp „Pólitísk ákvörðun“ hvort hraðinn verði 90 eða 110 Ráðherra með „fráleita hótun“ Stærsti veðmálaviðburður sögunnar nær til ungs fólks Ógnvænleg hegðun daglegt brauð: „Það er orðin raunin í þessum bransa“ Formaður Brunavarna Árnessýslu: Málið litið mjög alvarlegum augum Einfaldur seðill flýtir ekki lokatölum Þúsundir Úkraínumanna mótmæla hrókeringum Selenskís Undirbúningur fyrir þjóðaratkvæði í fullum gangi og hækkun hámarkshraða rædd Klóraði lögreglumann og beit annan Ólafur ráðinn sveitarstjóri Skagastrandar Geri foreldra og börn að lögbrjótum Enginn framhaldsskólakennari meti stöðu nýnema mjög góða Mál Péturs slökkviliðsstjóra komið á borð lögreglu Almar nýr formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga Dró strætóbílstjóra úr sætinu og potaði í augu hans Kalla inn Voga ídýfu vegna vanmerkts ofnæmisvalds MAST hafi farið gegn áliti fagráðs um blóðmerahald Stefnir í fámennari Þjóðhátíð: „Við tökum þetta á langhlaupinu“ Lengja opnunartíma í Salalaug Ár liðið frá því síðast gaus á Reykjanesi Jafnvel brotist inn þegar fólk er heima Erfiðara og erfiðara að lifa mannsæmandi lífi á Íslandi Sjá meira