Innlent

Segja menn græða á sölu ólöglegra tækja

Amerísk heimilistæki af varnarsvæðinu þykja vönduð vara en eru ólögleg á Íslandi vegna annarrar rafmagnsspennu en hér tíðkast.
Fréttablaðið/GVA
Amerísk heimilistæki af varnarsvæðinu þykja vönduð vara en eru ólögleg á Íslandi vegna annarrar rafmagnsspennu en hér tíðkast. Fréttablaðið/GVA
Rafiðnaðarsamband Íslands segir að heimilistæki séu nú seld út af gamla varnarsvæðinu á Keflavíkurflugvelli þrátt fyrir að notkun þeirra sé ólögleg hér á landi.

„Nýverið höfðu rafiðnaðarmenn samband við skrifstofur RSÍ og bentu á að forsvarsmenn þeirra fyrirtækja sem sjá um endurnýjun íbúða og rafbúnaðar á Vellinum séu að selja og í einhverjum tilfellum að gefa þau tæki sem tekin eru niður á Vellinum. Það er að segja að þessi tæki eru enn í notkun í landinu og forsvarsmenn þessara fyrirtækja séu að taka sér arð af því að koma þeim í umferð,“ segir í frétt á heimasíðu Rafiðnaðarsambandsins.

Guðmund Gunnarsson, formaður Rafiðnaðarsambandsins, segir að tæpur mánuður sé síðan málið hafi verið kært til rafmagnseftirlitsins. Á vef sambandsins segir nánar um málið að bandaríski herinn hafi skilið eftir sig á annað þúsund þvottavélar og annað eins af þurrkurum, ísskápum og eldavélum. Öll tækin nota 110 volta spennu en ekki 220 eins og er í íslenska kerfinu. Eftir eitt ár rennur út þriggja ára frestur sem veittur var til að breyta rafmagnskerfinu á vellinum þannig að það verði 220 volt. Eftir þann tíma á að farga öllum þessum tækjum eða senda þau úr landi.

„Það ætti öllum að vera ljóst að þessi tæki eru nákvæmlega jafn hættuleg hvort sem þau eru í íbúðum og fyrirtækjum á vallarsvæðinu eða annars staðar á landinu,“ segir í frétt Rafiðnaðarsambandsins sem vill að rafmagnseftirlitið svari eftirfarandi spurningum: „Það er búið að gera upp vel á annað þúsund íbúða. Hvar eru tækin sem tekin voru úr þessum íbúðum? Var þeim fargað? Voru þau seld úr landi? Voru þau sett á íslenskan markað?“

Jóhann Ólafsson, sviðsstjóri rafmagnöryggissviðs Brunamálastofnunar, segir sjálfsagt að skoða þessi mál ofan í kjölinn og árétta við hlutaðeigandi hvaða reglur gildi.

„Það er verið að gefa í skyn að þarna séu einhverjir að selja tæki en þeir eru ekki nafngreindir. Þetta er svolítið stór hópur sem þetta getur átt við, en við erum að kanna málið,“ segir Jóhann.

Tæki sem eru gerð fyrir ameríska rafmagnskerfið virka eðlilega hér með spennibreyti. „Þessi tæki eru alls ekki lífshættuleg en þau eru ekki lögleg,“ segir Jóhann.

Þróunarfélagið Kadeco annast eignir á gamla varnarsvæðinu. Ekki fengust svör þaðan í gær um þetta mál.

gar@frettabladid.is



Fleiri fréttir

Sjá meira


×