Átta Pólverjar fyrir rétti vegna þjófnaða 18. nóvember 2009 05:15 Fagnaðarfundir urðu í hópi Pólverja sem sakaðir eru um fjölda þjófnaða þegar komið var með tvo úr hópnum sem setið hafa í gæsluvarðhaldi inn í Héraðsdóm Reykjaness í gærmorgun. Fréttablaðið/GVA
Nokkur viðbúnaður var í Héraðsdómi Reykjaness í gær vegna fjölda sakborninga sem þá mættu fyrir rétt í umfangsmiklu þjófnaðarmáli. Þar eru átta manns af pólskum uppruna, um og yfir tvítugu, sökuð um aðild að fjölda þjófnaðarmála víðs vegar á höfuðborgarsvæðinu á þessu ári. Auk gæslumanna frá fangelsinu á Litla-Hrauni gættu lögreglumenn af höfuðborgarsvæðinu þess að allt færi vel fram. Aðalmeðferð í málinu hófst í gær og lýkur síðdegis í dag. Auk sakargifta sem snúa að þjófnuðum er sambýliskona eins mannsins jafnframt sökuð um að hafa reynt að hylma yfir með honum og að hafa reynt að aðstoða við að koma stolnum munum í verð. Handtökur fóru fram snemma í ágúst, en þrír úr hópnum hafa setið í gæsluvarðhaldi síðan þá, tveir á Litla-Hrauni og einn í hegningarhúsinu við Skólavörðustíg í Reykjavík. Stúlkan var handtekin fyrir utan verslunina Gull og Silfur eftir að hafa reynt að selja þar stolna skartgripi. Létt var yfir sakborningum áður en réttarhöldin hófust í gærmorgun og heilsuðust glaðlega þeir sem mættir voru og hinir sem komið var með úr gæsluvarðhaldi. Játning liggur fyrir í hluta sakargifta, en í öðrum neita sakborningar sök eða játa að hluta. Málin eru fjölmörg, en þau varða meðal annars innbrot í íbúðir og bíla, auk annarra þjófnaðarmála. Unnustan sem sökuð er um hylmingu neitaði sök fyrir rétti í gær og kvaðst ekki hafa gert sér grein fyrir því að um þýfi hafi verið að ræða. Unnusti hennar kvaðst hafa keypt stolnu munina af manni við vídeóleigu í Breiðholti og kvaðst hafa talið þá hluta af braski tengdu pólskri vefsíðu að nafni Forum þar sem hlutir gangi kaupum og sölu. Andvirði stolinna muna í einum ákæruliðanna er metið á 1,5 milljónir króna og kemur úr einu innbroti. - óká
Tengdar fréttir Dregur úr notkun sýklalyfja hérlendis Dregið hefur úr notkun sýklalyfja hér á landi fyrstu níu mánuði ársins segir Haraldur Briem sóttvarnalæknir. Hann segir skýringu ekki liggja fyrir. Hugsanlega spari fólk við sig sýklalyf þegar fjárhagurinn versnar, líkt og gerst hafi undanfarið. 18. nóvember 2009 04:45 Mest lesið Svona berðu kennsl á fyrstu einkenni heilabilunar Innlent Slökkviliðsstjóri lætur af störfum eftir ábendingar Innlent Simmi biður Söndru og sjúkraliðana afsökunar Innlent Tekur upp hanskann fyrir Lite-bjórinn Innlent Hélt um fætur eiginmannsins meðan hann sogaðist úr glugga í háloftunum Erlent Misboðið vegna ömurlegrar gyðingaandúðar Innlent Vinna ekki með Bandaríkjamönnum af þjóðaröryggisástæðum Erlent Sárkvalin og þurfti að borga eina og hálfa milljón fyrir aðgerð Innlent Bílvelta austan við Hvalnes Innlent Hætt að taka við reiðufé vegna innbrotahrinunnnar Innlent Fleiri fréttir „One love“ til allra í kommentakerfinu Einn í gæsluvarðhaldi vegna tengsla sinna við innbrotahrinu Sárkvalin og þurfti að borga eina og hálfa milljón fyrir aðgerð Galið kerfi, hatur á samfélagsmiðlum og boltastemning í beinni Bílvelta austan við Hvalnes Hætt að taka við reiðufé vegna innbrotahrinunnnar Tekur upp hanskann fyrir Lite-bjórinn Enn enginn grunaður um spellvirkin við Grafarvogskirkju Ekki falsaðir peningar heldur gervipeningar Íris Dröfn settur sýslumaður á Austurlandi „Miklar vendingar núna í málefnum bæjarins“ Verða höfð með í ráðum vegna niðurrifsins við Sæbraut „Lögregla á að bregðast við refsiverðri háttsemi“ Ákærður fyrir manndráp af gáleysi vegna áreksturs þar sem tveir létust Misboðið vegna ömurlegrar gyðingaandúðar Gyðingaandúð, netsala áfengis og skólahald í Grindavík Slökkviliðsstjóri lætur af störfum eftir ábendingar Simmi biður Söndru og sjúkraliðana afsökunar Tugir innbrota til rannsóknar hjá lögreglu Alvarleg líkamsárás á borði miðlægrar rannsóknardeildar „Búnir að þróa með sér spilafíkn áður en þeir byrja að veðja“ Ríkið borgar brúsann vegna langdreginnar rannsóknar á árás við skólalóð Alvarlegar líkamsárásir í Reykjavík Svona berðu kennsl á fyrstu einkenni heilabilunar Styrkt verkefni í fyrra sem spari þjóðinni 93 milljarða króna Lítil bjartsýni á úrslitastundu Ekki eigi að leyfa frekjukallinum að vaða uppi Loks fengið varanlegt heimili eftir yfir hundrað ár á Íslandi Grobba sig af stolnum trjám „Ég hélt að það erfiðasta yrði að lifa af nauðgunina sjálfa“ Sjá meira
Dregur úr notkun sýklalyfja hérlendis Dregið hefur úr notkun sýklalyfja hér á landi fyrstu níu mánuði ársins segir Haraldur Briem sóttvarnalæknir. Hann segir skýringu ekki liggja fyrir. Hugsanlega spari fólk við sig sýklalyf þegar fjárhagurinn versnar, líkt og gerst hafi undanfarið. 18. nóvember 2009 04:45