Haarde í HardTalk: Hefur ekki talað við Brown 12. febrúar 2009 09:55 Geir Haarde svarar spurningum Stephen Sackurs í Hard Talk.
Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, hefur ekki rætt við Gordon Brown, forsætisráðherra Breta, eftir að hryðjuverkalögin gegn Íslendingum voru sett á í október. Hann telur hins vegar að hann hefði ef til vill átt að ræða við hann eftir atburðina. Þetta kom fram í samtali Geirs við Stephen Sackur, stjórnanda sjónvarpsþáttarins HardTalk, í gegnum gervihnött á BBC World News núna í morgun. Geir neitaði að biðjast afsökunar á efnahagshruninu þegar að Sackur innti hann eftir afsökunarbeiðni á sínum þætti málsins. Hann sagði að ef hann myndi biðjast afsökunar myndi hann gera það heima fyrir en ekki í sjónvarpsþætti í BBC. Ef hann bæðist afsökunar yrði það eftir að rannsóknarnefnd um bankahrunið lyki störfum. Geir sagði að erfitt hefði verið að grípa inn í vöxt bankanna vegna þess alþjóðlega reglugerðaverks sem bankarnir hafi verið í. Hann sagðist hafa talið að bankarnir stæðu á traustum grunni þegar að ársfundur Seðlabanka Íslands var haldinn í mars. Hann hefði talið að bankarnir gætu fjármagnað sig að minnsta kosti út árið 2009 og stjórnendur þeirra gætu átt auðvelt með að minnka þá og gera þá viðráðanlegri. Geir sagði að auðvelt væri að segja núna eftirá að menn hefðu átt að gjalda varhug við því að bankarnir væru 10 sinnum stærri en landsframleiðslan. Hann minnti jafnframt á að fall bankanna væri að hluta til komið vegna aðstæðna á alþjóðlegum markaði. Íslendingar hefðu til dæmis ekki getað séð fall Lehman bankans fyrir.
Mest lesið Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Innlent Bein útsending: Valkyrjurnar halda blaðamannafund Innlent „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ Innlent „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ Innlent Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Innlent Hvað segja veðbankarnir? Innlent Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Innlent „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Innlent Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Innlent Fleiri fréttir Bandaríkin virði fullvalda ákvörðun þjóðarinnar Kveiktu bál á bílastæði Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Grindavík Ultra strandaði við varnargarðana Sveitarstjórn krefur símafyrirtækin um skýringar eftir alvarlegt vinnuslys Hafi skynjað um nokkra hríð að já-hliðin væri ekki í sókn Mesta kjörsókn í sögu lýðveldisins Piparúða beitt við handtöku í Hafnarfirði „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Lögreglan í Vestmannaeyjum óskar eftir vitnum Nei-hliðin vann á ástríðunni „Landsbyggðin okkar stendur sterk” Ríkisstjórnin virði niðurstöðuna og taki málið af dagskrá Ferðalagið með ruslið ætti ekki að lengjast þó þjónustan færist fjær Niðurstaðan sé töluvert áfall fyrir ríkisstjórnina Bein útsending: Valkyrjurnar halda blaðamannafund Segir niðurstöðuna áfall fyrir ríkisstjórnina Sprengisandur: Kosningarnar gerðar upp Lokatölur úr Suðvesturkjördæmi: Fullvissuðu þjóðina um að svarið væri nei Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Ofurölva ungmenni hlupu öll á brott nema eitt Ætla að opnan nýjan unglingaskóla í Ármúla Lokatölur í Norðausturkjördæmi: Nei jók forskotið undir lokin Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Lokatölur úr Suðurkjördæmi: Sextíu prósent sögðu nei Lítil breyting í lokatölum Reykjavíkurkjördæmis suður Dró saman á milli fylkinga í lokatölum Reykjavíkur norður Margra ára vegferð í vændum sigri já-ið „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ Sjá meira