Stjórnarslit voru tíð 24. janúar 2009 05:30 guðni th. jóhannesson „
Það var mun eðlilegra áður fyrr að stjórnir sætu ekki út kjörtímabilið. Fyrir 1988 er það eiginlega bara Viðreisnarstjórnin sem svo gerir," segir Guðni Th. Jóhannesson sagnfræðingur. Árið 1988 sprakk ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks, Alþýðuflokks og Framsóknarflokks, undir forsæti Þorsteins Pálssonar. Árið 1983 hefðu kosningar með réttu átt að vera í desember. Ákveðið var þó að flýta þeim og voru þær haldnar í apríl það ár. Ríkisstjórn Gunnars Thoroddsen, sem þá sat, var orðin mjög veik, en hafði nægan þingstyrk til að verjast vantrausti. Árið 1979 sprakk ríkisstjórn Ólafs Jóhannessonar, formanns Framsóknarflokksins, með látum, þegar Alþýðuflokkurinn hætti stuðningi við hana. Ólafur rauf þó ekki þing, heldur kom það í hlut Benedikts Gröndal, formanns Alþýðuflokksins, sem var í forsvari minnihlutastjórnar sem sat fram að kosningum í desember. Fyrri ríkisstjórn Ólafs sprakk einnig árið 1974. „Það varð sögulegt að því leyti að þegar líf hennar var alveg á enda var búið að leggja fram vantrauststillögu á stjórnina og meirihluti var fyrir því. Ólafur varð hins vegar fyrri til og rauf þing og því kom vantraust ekki til atkvæða," segir Guðni. Stjórn Hermanns Jónassonar fór frá völdum árið 1958, tveimur árum eftir stofnun. Stjórnin hafði tekið við af stjórn Ólafs Thors, en hann hafði boðað til kosninga ári áður en kjörtímabili lauk. Að lokum má nefna að Stefanía, stjórn undir forsæti Stefáns Jóhanns Stefánssonar formanns Alþýðuflokksins, sat frá 1947 til 1949.- kóp
Mest lesið Maður leiddur út í járnum í lögregluaðgerð í Tryggvagötu Innlent „Kom hvergi nærri samræði hans við barnunga stúlkuna“ Innlent Airbnb-íbúðir leigðar undir fölsku flaggi Innlent Slökkt á eldsneytisflæði rétt eftir flugtak og ruglingur milli flugmanna Erlent Indversk tenniskona skotin til bana af föður sínum við morgunverðarborðið Erlent „Liggur alveg ljóst fyrir að þetta frumvarp er drasl“ Innlent Opinberar gamalt ástarsamband við táningsstúlku Innlent Spá hitabylgju í byrjun næstu viku og allt að 29 stigum Veður Vændiskaupendur séu oftast fjölskyldufeður á leið til vinnu eða fundar Innlent „Hann er að eigna sér eitthvað sem hann á ekki“ Innlent Fleiri fréttir „Kom hvergi nærri samræði hans við barnunga stúlkuna“ Maður leiddur út í járnum í lögregluaðgerð í Tryggvagötu Airbnb-íbúðir leigðar undir fölsku flaggi Opinberar gamalt ástarsamband við táningsstúlku „Liggur alveg ljóst fyrir að þetta frumvarp er drasl“ Forstöðumaður spilar og syngur fyrir gesti Sundlaugar Akureyrar Sögulegur dagur á Alþingi og vændi í Airbnb-íbúðum Árekstur bíls og vespu á Hafnarfjarðarvegi Sögulegur dagur á Alþingi: Lýðræðisákvæði eða kjarnorkusprengja? Varðskipið Þór heldur heim frá Noregi í næstu viku Frumvarpið komið yfir erfiðasta hjallann en gæti átt nóg eftir Einn handtekinn í mansalsrannsókn lögreglunnar Vændiskaupendur séu oftast fjölskyldufeður á leið til vinnu eða fundar Lögregla rannsakar slys í sundlauginni í Stykkishólmi Kristrún fái ef til vill að bragða á eigin meðali fyrr en síðar Hóta að loka svæðinu við Seljalandsfoss „Hann er að eigna sér eitthvað sem hann á ekki“ „Hræðilegar fréttir fyrir lýðræðið á Íslandi“ Fordæmalaus ákvörðun sem gæti breytt Alþingi til framtíðar Dramatík á Alþingi og bílastæðablús hjá World Class Velti bílnum við Fjarðarhraun Flytja hluta starfsemi SAk vegna myglu Sjá ekki fyrir endann á umfangsmikilli rannsókn á fíkniefnaframleiðslu „Þetta er alvarlegur áfellisdómur yfir forsætisráðherra“ Vaktin: Tillagan samþykkt og annarri umræðu um veiðigjöld lokið Fundu 36 hugsanlega þolendur mansals á Íslandi í alþjóðlegri lögregluaðgerð „Eftir þetta hvassviðri í þinginu í gær heldur lífið áfram“ Tekjur af laxveiði í Borgarfirði eru vel yfir 50% af tekjum landbúnaðar á svæðinu Krefjast bóta verði ekki fallið frá áformum um skólaþorp Halda áfram að ræða veiðigjöldin Sjá meira