Erlent

Missti átta fingur í listaskóla

Atli Steinn Guðmundsson skrifar
Frá listaskóla í Boston í Lincolnskíri. Þó ekki þeim er fréttin fjallar um.
Frá listaskóla í Boston í Lincolnskíri. Þó ekki þeim er fréttin fjallar um.

Listaskóli nokkur í bresku borginni Boston í Lincolnskíri þarf heldur betur að endurskoða kennsluaðferðir sínar eftir að 16 ára gömul stúlka missti átta fingur við gerð gipslistaverks sem hún festi hendurnar í en listaverkið hitnaði í framhaldinu upp í 60 gráður. Óhappið átti sér stað í janúar árið 2007 og hefur dómstóll nú komist að þeirri niðurstöðu að skólanum beri að greiða nemanda sínum tæp 20.000 pund í skaðabætur auk málskostnaðar. Þá vítti dómari skólastjórnendur sérstaklega fyrir að tilkynna vinnueftirlitsmönnum ekki um slysið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×