Innlent

Stjórnarsáttmálinn mikil vonbrigði

Birkir Jón Jónsson, varaformaður Framsóknarflokksins.
Birkir Jón Jónsson, varaformaður Framsóknarflokksins.

„Um leið og ég óskar nýrri ríkisstjórn velfarnaðar þá verð ég að segja að stjórnarsáttmálinn veldur mér miklum vonbrigðum," segir Birkir Jón Jónsson, varaformaður Framsóknarflokksins, aðspurður um nýja ríkisstjórn og stjórnarsáttmála hennar.

„Ég hefði viljað sjá mun róttækari aðgerðir fyrir heimilin og fyrirtækin í landinu en það virðist ekki mikilla breytinga vera að vænta," segir varaformaðurinn.

Birkir segir ljóst að hlutverk stjórnarandstöðunnar verði mikilvægt á næstu viku. „Við þurfum að halda ríkisstjórninni að verkum því það er ljóst að frekari aðgerða er þörf heldur en kveðið er á um í þessum stjórnarsáttmála."
















Tengdar fréttir

Katrín og Árni Páll nýir ráðherrar Samfylkingarinnar

Þingmennirnir Katrín Júlíusdóttir og Árna Páll Árnason verða ráðherrar í nýrri ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri grænna. Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir lætur af störfum sem félagsmálaráðherra. Flokksstjórn Samfylkingarinnar samþykkti þetta á fundi sínum í dag.

Mikið verk að vinna

„Þetta er gríðarleg áskorun en nú er bara að bretta upp ermar. Ég er mjög ánægð með þessa ríkisstjórn og stjórnarsáttmálann sem er öflugur, en það þarf aldeilis að taka til hendinni,“ segir Katrín Júlíusdóttir en tilkynnt var fyrr í dag að hún taki við af Össuri Skarphéðinssyni sem iðnaðarráðherra.

Aðildarumsókn fyrir þingið í vor - nýr stjórnarsáttmáli

Utanríkisráðherra mun leggja fram á vorþingi tillögu um aðildarumsókn að Evrópusambandinu. Þetta kemur fram í nýjum stjórnarsáttmála Samfylkingarinnar og Vinstri-grænna. Stuðningur stjórnvalda við samninginn er háður ýmsum fyrirvörum. Kynning á nýjum stjórnarsáttmála er að hefjast og er hægt að fylgjast með henni í beinni útsendingu á Stöð 2.

Svandís og Jón nýir ráðherrar VG

Svandís Svavarsdóttir, borgarfulltrúi, og Jón Bjarnason, þingflokksformaður Vinstri grænna, verða ráðherrar í nýrri ríkisstjórn VG og Samfylkingar. Svandís tekur við Kolbrúnu Halldórsdóttur sem umhverfisráðherra og Jón verður sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra í stað Steingríms J. Sigfússonar.

Sjávarútveginum send slæm skilaboð - ósamstíga í Evrópumálum

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, varaformaður Sjálfstæðisflokksins, segir tvennt standa upp úr eftir blaðamannafund forystumanna tilvonandi ríkisstjórnar Samfylkingar og Vinstri grænna. Annars vegar hversu ósammála flokkarnir eru í Evrópumálum og hins vegar þau vondu skilaboð sem fyrirtækjum í sjávarútvegi voru send.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×