Gerði grín að veikindunum 29. apríl 2009 06:00 Jay Leno ásamt Barack Obama Bandaríkjaforseta. Spjallþáttastjórnandinn vinsæli er mættur aftur í Tonight Show eftir veikindi sín.
Bandaríski spjallþáttastjórnandinn Jay Leno hefur snúið aftur í þátt sinn, Tonight Show, eftir nokkurra daga kvef. Að sjálfsögðu gerði hann grín að veikindunum eins og hans er von og vísa. Aflýsa þurfti tveimur þáttum vegna veikindanna og var það í fyrsta sinn sem Leno missti úr þátt síðan hann tók við starfinu árið 1992. Leno, sem er 58 ára gamall, gerði í þættinum grín að svína-flensunni, veikindum sínum og vopnaða öryggisverðinum sem var látinn standa við sjúkrarúm hans. Maður sem þóttist vera prestur reyndi að komast inn í herbergi Lenos og því ákvað NBC-sjónvarpsstöðin að ráða öryggisvörð. „Núna er eins og ég sé í The Godfather,“ sagði Leno og vísaði þar í atriði úr hinni frægu kvikmynd. „Við erum komin aftur og það verður ekki fleiri þáttum frestað,“ lofaði hann. „Það sem gerðist var að ég borðaði hrátt svín sem vinur minn kom með frá Mexíkó. Það var virkilega gott.“ Þegar Leno var á sjúkrahúsinu gerði hann grín að Conan O"Brien sem tekur við starfi hans í júní. „Ég fékk hræðilega martröð um að ég gæti ekki andað. Mér fannst ég vera að kafna. Þá vaknaði ég og komst að því að Conan hélt á kodda fyrir ofan andlitið á mér.“
Mest lesið Útför Björgvins opin almenningi Lífið Einvígi aldarinnar endurtekið Lífið Fengið sinn skerf af áföllum í lífinu Lífið Krummi kveður pabba sinn Lífið Rákust á Mamdani yfir morgunbollanum Lífið Milljónir í að efla tónleikastaði í miðbænum Tónlist Þetta er áratugurinn sem samtíminn saknar mest Lífið Fjölbreyttur hópur í dómnefnd Ungfrúar Íslands Lífið Báru fram kokteila í vatnsbyssum, páskaeggjum og kransakökum Lífið „Það er verið að kalla hana n-orðinu“ Lífið Fleiri fréttir Útför Björgvins opin almenningi Báru fram kokteila í vatnsbyssum, páskaeggjum og kransakökum Einvígi aldarinnar endurtekið Svona er dagskrá Barnamenningarhátíðar í ár „Það er verið að kalla hana n-orðinu“ Fjölbreyttur hópur í dómnefnd Ungfrúar Íslands Fengið sinn skerf af áföllum í lífinu Krummi kveður pabba sinn Leikaraliðið í Leitinni að Gollri fullskipað: Jamie Dornan verður Aragorn Oddvitaáskorunin: Myndi vilja vera „sérfræðingur að sunnan“ Rákust á Mamdani yfir morgunbollanum Þetta er áratugurinn sem samtíminn saknar mest Hvað veistu um... Vetrarólympíuleika? Mætti í þáttinn til að vinna sér inn fyrir þurrkara Frumfluttu lag Barnamenningarhátíðarinnar fyrir káta krakka „Ég hef grátið því að ég var svo skotin í þér“ Uppeldið hjá ömmu og afa áhrifamest „Þetta lið á Akureyri vildi ekki gefa mér gullið“ Gurrý um svuntuaðgerðina: „Jesús hvað þetta er búið að vera erfitt“ Clavicular fluttur á spítala vegna ætlaðrar ofskömmtunar Oddvitar landsins takast á við Oddvitaáskorunina Óvænt ökuferð að ógleymanlegu augnabliki Umdeildum K-Pop stjörnum skipt út í Hörpu Opnar sig um andlát kærastans eftir skotárás í New York „Svo kom í ljós að þetta var alls ekki amma mín“ „Hún reyndi aldrei að koma í stað mömmu“ „Ég var mjög skrítinn krakki“ Bryndís Líf orðin móðir Yfirgaf yfirstéttina fyrir loftárásir, listaverkarán og sprengjugerð Oddvitaáskorunin: „Big Papa“ uppáhalds gælunafnið Sjá meira