Spilar á þaki í Washington 22. maí 2009 02:00 Sunna Gunnlaugsdóttir Sunna spilar uppi á þaki sænska sendiráðsins í Washington DC á þjóðhátíðardaginn 17. júní. „
Mér finnst þetta ferlega spennandi," segir píanóleikarinn Sunna Gunnlaugsdóttir sem spilar með djasskvartett sínum á þaki sænska sendiráðsins í Washington DC á þjóðhátíðardaginn 17. júní. Tónleikarnir eru hluti af norrænni djasshátíð sem verður haldin í Washington og munu fleiri hljómsveitir spila uppi á þakinu. „Þetta er svolítið óvenjulegt," viðurkennir Sunna, sem ætlar að spila í klukkutíma með hljómsveit sinni. Bítlarnir héldu sögufræga lokatónleika sína uppi á þaki Apple-byggingarinnar í London 1969 og U2 gerði slíkt hið sama fyrr á þessu ári á þaki höfuðstöðva BBC í London. Sunna slæst því í hóp mikilla tónlistargoðsagna með tónleikum sínum í Washington og á vafalítið eftir að vekja mikla lukku. Tónleikarnir smellpassa við dagskrá Sunnu því hún hefur þegar bókað tónleika í New York og Virginíu um svipað leyti. Að auki ætlar hún að taka upp nýja plötu í Brooklyn í New York en áður hefur hún tekið þar upp plöturnar Mindful og Songs From Iceland. Hún segir það æðislegt að taka þar upp plötu. „Við erum með alveg súperfínan flygil og maður vill helst ekki fara heim aftur. Þetta er risastórt pláss og viðarinnréttað. Það er bara algjör lúxus að vera þarna." Til að hita upp fyrir ferðalag sitt til Bandaríkjanna spilar Sunna í Vonarsal SÁÁ í Reykjavík 28. maí ásamt Þorgrími Jónssyni kontrabassaleikara og Scott McLemore trommara. Tónleikarnir hefjast klukkan 12 og standa yfir í hálftíma. - fb
Mest lesið Mig langaði til að öskra: „Ég skal segja allt af létta!“ Gagnrýni Harbour rýfur þögnina Bíó og sjónvarp Hefur þegar fengið starfstilboð Lífið Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Lífið Hvað veistu um… árið 2010? Lífið „Það má herma“ Tíska og hönnun Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Lífið Swae Lee heldur tónleika á Íslandi Tónlist Allt að 200 ára veggjakrot fannst við framkvæmdir Lífið Guðrún Ýr og Birnir í eina sæng Tónlist Fleiri fréttir Allt að 200 ára veggjakrot fannst við framkvæmdir Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Hefur þegar fengið starfstilboð Hvað veistu um… árið 2010? Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Sjö heitustu brúðkaupstrendin í sumar „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Rassaumhirða karla í sókn Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn í Reykjavík Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Þegar tónlistin heltók lögmanninn Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Sjá meira