Vill sátt um aðhaldsaðgerðir 9. september 2009 05:00 Ragna Árnadóttir
Ragna Árnadóttir dómsmálaráðherra ætlar að leita eftir þverpólitískri samvinnu um málefni Landhelgisgæslunnar. Hún hyggst setja á fót starfshóp þingmanna stjórnar og stjórnarandstöðu með embættismönnum úr dómsmálaráðuneytinu og frá Landhelgisgæslunni. „Landhelgisgæslan hefur þurft að grípa til aðhaldsaðgerða, sem óhjákvæmilega hafa skert getu hennar til að sinna hlutverki sínu af þeim metnaði sem menn hafa. Starfshópurinn hefði það verkefni að fara yfir landhelgisgæsluáætlun og aðra stefnumótun,“ segir Ragna. „Meðal annars yrði farið yfir rekstur varðskipa og þyrlureksturs og hvernig þessum málum sé best háttað bæði í nútíð og til framtíðar.“ TF-Lif Fer í skoðun árið 2010 sem kostar 250 milljónir króna. fréttablaðið/daníel Fyrirhugaður er verulegur niðurskurður á fjárveitingum á næstunni en á næsta ári stendur LHG frammi fyrir stórri skoðun á TF LIF sem kostar allt að 250 milljónir króna. Á sama tíma er gert ráð fyrir því í núgildandi landhelgisgæsluáætlun að varðskipum fjölgi og úthald þeirra verði aukið. Þá hefur verið samið við Norðmenn um samstarf í innkaupum vegna heildarendurnýjunar þyrluflotans. „Í þessu ljósi er nauðsynlegt að skoða málefni LHG í heild sinni vegna minnkandi fjárveitinga. Þá tel ég mikilvægt að ná víðtækri sátt um þær aðhaldsaðgerðir sem ráðist verður í og þá forgangsröðun verkefna sem er óhjákvæmileg,“ segir Ragna. - shá
Mest lesið Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum Innlent „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Innlent Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Innlent Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss Innlent Æðsti yfirmaður NASA: „Fylgjandi því að gera Plútó aftur að reikistjörnu“ Erlent Handtekinn eftir að rottueitur fannst í barnamat Erlent Leist ekki á tillögu um opnun Hormússunds Erlent Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Innlent „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ Innlent Kosningavaktin 2026: Landsmenn kjósa sér sveitarstjórnir Innlent Fleiri fréttir Lögðu hald á eggvopn og fíkniefni en handtóku engan Verkalýðsfélög, gervigreind og Landeyjahöfn í Sprengisandi Fjórir handteknir vegna fjögurra líkamsárása Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Beint: Pallborð Leigjendasamtakanna um húsnæðismál Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Það geti ekki hvaða skip sem er dýpkað í mynni Landeyjahafnar „Flokkur fólksins tekur í rauninni út óánægju með ríkisstjórnina“ Óska þess að ákvörðun um spítalann liggi fyrir sem fyrst Meirihlutinn á þingi fallinn, gremja í Grímsey og risadagur í íþróttunum Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Sjá meira