Segist hafa sogið bensín en ekki áfengi Magnús Már Guðmundsson skrifar 9. september 2009 16:46 Mynd/Anton Brink
Karlmaður sem var sviptur ökuleyfi tímabundið fyrr á árinu segir að bensín sem hann saug upp í sig hafi ruglað áfengismæla lögreglu. Héraðsdómur Reykjavíkur féllst nýverið ekki á þá skýringu og Hæstiréttur staðfesti þann úrskurð í dag. Lögreglan stöðvaði manninn þar sem hann ók bifreið eftir Mosfellsdal fimmtudaginn 28. maí fyrr á þessu ári. Lögreglumenn grunaði að hann væri undir áhrifum áfengis og segir í skýrslu að fundist hafi áfengislykt af honum. Maðurinn viðurkenndi hafa drukkið áfengi kvöldið áður og um nóttina. Hann blés í áfengismæli og var niðurstaða 2,50 prómill. Í framhaldinu var hann sviptur ökuleyfi til bráðabrigða. Maðurinn leitaði til læknis sama dag og lögregla stöðvaði hann vegna kviðverkja sem taldir eru hafa verið vegna bakflæðis. Hann hafði að sögn verið á biluðum mótorbát og þurft að sjúga upp bensín. Læknisvottorð sem maðurinn lagði fram máli sínu til stuðnings var ótímasett. Maðurinn fullyrti að hann hafi ekki verið undir áhrifum áfengis. Hann hafi sogið upp bensín og að svo virtist sem að bensínið hafi ruglað mælinguna og hún þess vegna sýnt að hann væri undir áhrifum áfengis. Hvorki héraðsdómur sé Hæstiréttur féllust á skýringar mannsins. Hann þarf samanlagt að greiða rúmlega 214 þúsund krónur í málskostnað.
Mest lesið Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur Innlent „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Innlent Segir sig hafa mátt þola þöggun og ógnarstjórnun í Eyjum Innlent Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Erlent „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Innlent Bein útsending: Tekist á um þjóðaratkvæðagreiðsluna Innlent Fækkar lögregluembættum Innlent Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Innlent Fleiri fréttir Segir sig hafa mátt þola þöggun og ógnarstjórnun í Eyjum Stefán Carlsson er látinn Bein útsending: Tekist á um þjóðaratkvæðagreiðsluna Gert ráð fyrir atkvæðagreiðslu um aðildarviðræður í dag Gular viðvaranir og snjókoma næsta sólarhringinn Enn tekist á um ESB í þingsal og verðbólgan hjaðnar lítið Gylfi verður bæjarstjóri á Ísafirði „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Fækkar lögregluembættum Líta stöðuna í Varmá mjög alvarlegum augum Fagnar því að allir þingmenn fái að kynna sér ESB-gögnin Steinum kastað í bifreiðar og rúða brotin í skóla Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið „Höfum þegar tekið upp tólið og heyrt í fjármálaráðherra“ Konan komin í leitirnar Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Lögregla kölluð til þegar slegist var um bílastæði Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Hjónasjálfa, gleði og faðmlög í Viðey Nýr borgarstjóri mætir í beina útsendingu Landsnet lagði landeigendur í Hæstarétti Býr sig undir það versta en vonar það besta Fótbolti.net legið niðri í á annan sólarhring Krefjast þess að bankarnir dragi hækkanir til baka Sjá meira