Handtekin fyrir óhlýðni Hafsteinn Gunnar Hauksson skrifar 15. júní 2009 20:57 Heiða handtekin. Mynd/lillo.blog.is
Heiða B. Heiðarsdóttir, frambjóðandi Borgarahreyfingarinnar fyrir síðustu kosningar, er ein þeirra sem var handtekin á Austurvelli fyrir framan alþingishúsið í dag. Hún hafði að eigin sögn sýnt af sér borgaralega óhlýðni til að mótmæla aðferðum ríkisstjórnarinnar í málefnum Icesave. Heiða er óánægð með að yfirvöld hafi ekki farið dómstólaleiðina í Icesave málinu og vill að leyndarhjúpnum verði létt af samningaviðræðunum. Í mótmælaskyni settist hún ásamt fleirum á miðja götuna beint fyrir framan þinghúsið. „Við sátum þarna á miðri götunni og bílarnir komust ekki fram hjá okkur nema fara upp á gangstétt," segir Heiða, en segir flesta síðan hafa áttað sig og farið inn Pósthússtrætið í staðinn. „Við vorum ekkert að loka Miklubrautinni," segir Heiða og þykir óhlýðnin hafa verið í sinni vægustu mynd. Heiða var vöruð við og beðin um að fara af götunni. Hún gaf sig ekki og þegar hún reyndi að malda í móinn var hún handtekin og færð aftan í lögreglubíl. Hún segir aðspurð að þó aðfarirnar hafi ekki verið harkalegar sé hún afar ósátt við viðbrögð lögreglu. „Þetta eru mótmæli sem eru friðsöm í rauninni. Ég veit að maður á að hlýða lögreglu, en borgaraleg óhlýðni snýst einmitt um svona vægar aðgerðir, að vera fyrir, vera flugan í tjaldinu."
Mest lesið Glæpir eiga ekki að borga sig: Gæti hagnast fjárhagslega á að hafa banað föður sínum Innlent „Ellibætur“ frá ríkinu eigi að heyra sögunni til Innlent Selfoss stöðvaður í Bretlandi Innlent Reyndu að koma útlendingafrumvarpi að á síðustu stundu Innlent Hæðist að og smánar fyrrverandi forseta á „frægðargangi“ Erlent Súlunesmálið: Skoða þurfi lög er varða þagnarskyldu Innlent Myndskeið birt af Reiner eftir morðin og fyrir handtöku Erlent Naustin án bíla og eins og „löber“ með íslensku prjónamynstri Innlent Deildar meiningar um tölvupóst sem óvart var sendur á alla í nefndinni Innlent Sex hundruð miðar á vettvangi morðsins: „Fokking hálfvita fífl bæði tvö!!!!“ Innlent Fleiri fréttir Telur hagræðingaráformin þau metnaðarfyllstu Nauðsyn að skýra betur hvort eða hvenær læknar megi rjúfa þagnarskyldu Selfyssingar í 60 plús heilsueflingu klárir í jólin Skoða að koma á ferjusamgöngum milli Skotlands og Seyðisfjarðar Viðreisn gæti reynst í lykilstöðu milli blokkanna Barnavernd fylgist með fleiri ófrískum konum í neyslu en síðustu ár Fleiri óléttar konur í neyslu á borði barnaverndar og spennandi kosningar framundan Langvarandi einangrun ungrar konu gagnrýnd af Amnesty Selfoss stöðvaður í Bretlandi Þrettán nýir rafknúnir strætisvagnar teknir í notkun Zuism tekið af trúfélagaská eftir áralöng svik og pretti Mun áfram leiða lista Framsóknar í Múlaþingi Töpuðu 133 milljónum króna á kosningaári Reyndu að koma útlendingafrumvarpi að á síðustu stundu Súlunesmálið: Skoða þurfi lög er varða þagnarskyldu Samþykktu tillögu um uppbyggingu á Sorpu-lóð við Dalveg Spurningum Sigmundar Ernis svarað og málið ekki aftur í nefnd Þingstörfin á lokametrunum og styttist í jólafrí Naustin án bíla og eins og „löber“ með íslensku prjónamynstri Taka enn tuttugu þúsund króna beygju Ekið á kyrrstæðan bíl á Suðurstrandarvegi „Ellibætur“ frá ríkinu eigi að heyra sögunni til Áttu að taka tillit til þess að talsmaðurinn klikkaði Guðrún vinsælli en Agnes og traust til kirkjunnar á uppleið Glæpir eiga ekki að borga sig: Gæti hagnast fjárhagslega á að hafa banað föður sínum Björg býður ungliðum til fundar Verði húsið rifið verði fyrst að óska þess að friðun verði afnumin Staðin að því að stinga inn á sig snyrtivörum Takmarka fjölda nemenda utan EES Deildar meiningar um tölvupóst sem óvart var sendur á alla í nefndinni Sjá meira