Innlent

Samkomulagið upp á borðið

Magnús Árni Skúlason er einn af forsvarsmönnum InDefence-hópsins.
Magnús Árni Skúlason er einn af forsvarsmönnum InDefence-hópsins. Mynd/Vilhelm Gunnarsson
InDefence-hópurinn krefst þess að stjórnvöld gefi íslenskum almenningi von í Icesave-málinu. Hópurinn krefst þess að kjörnir fulltrúar þjóðarinnar fái aðgang að samkomulaginu, þannig að Alþingismenn hafi forsendur til að meta frumvarp til ríkisábyrgðar á rúmlega 700 milljarða ábyrgð vegna samkomulagsins við bresk og hollensk stjórnvöld.

„Í dag er dagur vonarglætu þegar bresk stjórnvöld létta hryðjuverkalögunum af Íslandi. InDefence-hópurinn hefur barist gegn notkun þessara laga og því að með þeim séu hagsmunir Íslands fótum troðnir," segir í tilkynningu frá hópnum.

Þar segir að Icesave-málið sé eitt það mikilvægasta sem Alþingi Íslendinga hefur þurft að taka ákvörðun um frá lýðveldisstofnun.

„Ábyrg og upplýst afstaða Alþingismanna sem og þjóðarinnar um ICESAVE samkomulagið er mikilvægt skref í endurreisn Íslands. Upplýsingar og gagnsæi er lykilatriði fyrir samfélagssátt og uppbyggingu efnahagslífs þjóðarinnar."








Fleiri fréttir

Sjá meira


×